Vilja stórlækka laun handhafa forsetavalds Atli Ísleifsson skrifar 13. nóvember 2014 12:52 Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar,er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Vísir/Valli
Þrír þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram frumvarp til laga sem gerir ráð fyrir að laun handhafa forsetavalds verði lækkuð verulega. Samkvæmt frumvarpinu skulu þeir samanlagt njóta sem svarar til eins tíunda hluta launa forseta þann tíma sem þeir hverju sinni fara með forsetavald um stundarsakir. Frumvarpið verður tekið til fyrstu umræðu á þingi í dag. Samkvæmt núgildandi lögum um laun forseta Íslands skulu handhafar forsetavalds samanlagt njóta jafnra launa og laun forseta eru þann tíma sem þeir hverju sinni fara með forsetavald um stundarsakir og skulu launin skiptast að jöfnu á milli þeirra. Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingar, og Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna eru flutningsmenn frumvarpsins. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að það sé mat flutningsmanna að „í ljósi kröfu um hagræðingu og sparnað í ríkisrekstri sé eðlilegt að þeir aðilar sem fara með forsetavald í fjarveru forseta gangi fram með góðu fordæmi og taki á sig launaskerðingu þar sem raunverulegt vinnuframlag viðkomandi aðila er ekki í samræmi við þær greiðslur sem ríkið innir af hendi vegna þessa.“ Greiðslur til handhafa forsetavalds hafa numið um 10 milljónir króna á ári síðastliðin fimm ár á núverandi verðlagi og lækka því í um það bil eina milljón á ári verði störf handhafanna framvegis áþekk því sem verið hefur. „Lækkunin er ákveðin með hliðsjón af því að eðli málsins samkvæmt eru störf handhafa forsetavalds að mestu takmörkuð við lögbundin störf, svo sem staðfestingu laga, þegar forseti Íslands er erlendis, en ekki heimsóknir, móttökur, setningarávörp og annað af því tagi sem m.a. felst í störfum forsetans. [...] Breytingin hefði í för mér sér sparnað í rekstri forsetaembættisins sé litið til heildarútgjalda.“ Handhafar forsetavalds eru þeir sem fara með embættisskyldur forseta í fjarveru hans. Í 8. grein stjórarskrárinnar segir að forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti hæstaréttar skulu fara með forsetavald þegar hann getur ekki gegnt störfum um sinn vegna dvalar erlendis, sjúkleika eða af öðrum ástæðum. „Forseti Alþingis stýrir fundum þeirra. Ef ágreiningur er þeirra í milli, ræður meiri hluti.“ Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að efnahags- og skattanefnd hafi flutt frumvarp sama efnis á 137. löggjafarþingi (168. mál) og var Magnús Orri Schram þá framsögumaður málsins. „Annað frumvarp til laga um breytingu á lögum um laun forseta Íslands var flutt á 143. löggjafarþingi af Árna Þór Sigurðssyni ( 21. mál). Hvorugt málið var tekið til efnislegrar meðferðar.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira