Fær 5 milljónir í skaðabætur vegna varanlegra áverka eftir bílslys Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. nóvember 2014 21:24 Slysið varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í maí 2006. Vísir/Arnþór
Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um greiðslu skaðabóta til konu vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir er önnur kona ók aftan á hana. Bílslysið varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í maí 2006. Konan stefndi Vátryggingarfélagi Íslands og konunni sem ók aftan á hana í nóvember 2012. Tveimur dögum eftir slysið leitaði konan sem keyrt var aftan á til læknis vegna verkja í baki og hnakka. Var hún þá greind með tognun og ofreynslu á hálshrygg og einnig á brjósthrygg. Var mælt með því við heimilislækni konunnar að hún færi í sjúkraþjálfun en af því varð ekki. Konan var undir eftirliti heimilislæknis síns eftir þörfum. Hún fór til hans í mars 2007 en var að öðru leyti í símasambandi við hann. Í febrúar 2010 fór konan til heimilislæknisins vegna bakverkjarins sem komið hafði í kjölfar slyssins. Verkurinn var farinn að trufla svefn konunnar og þurfti hún að komast í sjúkraþjálfun. Konan fór sjö sinnum í sjúkraþjálfun og var árangurinn af meðferðinni viðunandi. Í kjölfarið leitaði konan til lögfræðings sem sendi hana til skoðunar hjá bæklunarlæknum og taugalækni. Mat sérfræðinga var lagt fyrir dóminn og kom þar fram að konan hefði hlotið 7% varanlega örorku. Töldu þeir áverkana að auki þess eðlis að konan ekki getað gert sér grein fyrir því fyrr en árið 2010 að líkamstjónið sem hún varð fyrir væri varanlegt. Stefndu kröfðust sýknu og töldu ósannað að orsakatengsl væru á milli þess líkamstjóns sem skaðabótakrafan byggði á auk þess sem deilt var um hvort að málið væri fyrnt eða ekki. Dómurinn féllst ekki á að málið væri fyrnt og taldi gögn málsins sanna orsakatengsl á milli áverkanna og bílslyssins. Voru Vátryggingarfélag Íslands og konan sem olli aftanákeyrslunni því dæmd til að greiða konunni tæpar 5 milljónir króna í skaðabætur með dráttarvöxtum. Dóminn má nálgast í heild sinni hér.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira