Kölluð gleðikona því hún er frá Póllandi Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 15. nóvember 2014 20:00
Innflytjendur í Reykjavík upplifa töluverða fordóma í sinn garð og telja nauðsynlegt að efla fræðslu í þeim efnum í skólum og á vinnustöðum borgarinnar. Þetta er meðal þess sem kom fram á Fjölmenningarþingi sem haldið var í ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Tvö hundruð manns af hinum ýmsu þjóðernum tóku þátt í ár en það er metþátttaka. Um fjórtán þúsund innflytjendur búa í Reykjavík og er markmiðið með þinginu er að skapa umræður um málefni þeirra. Á meðal þátttakenda voru Anna frá Póllandi og Helder frá Angóla, en þau hafa bæði verið búsett hér á landi síðastliðin þrettán ár. Þau segja að margt megi betur fara í málefnum innflytjenda á Íslandi og hafa bæði fundið fyrir fordómum hér á landi. „Ég er oft kölluð ljótum nöfnum vegna þess að ég er frá Póllandi, og fólk hefur sagt mér að ég ætti frekar að skúra gólf en vera í afgreiðslustarfi. Sumir ganga meira að segja út frá því að ég sé gleðikona eða strippari, bara vegna þess að ég er pólsk,“ segir Anna. Þau eru þó sammála um að hægt sé að laga heilmikið með fordómafræðslu og vilja sjá hana eflast á vinnustöðum og í skólum. „Fólk er mikið að alhæfa og það þarf meiri fræðslu,“ segir Helder. „Íslendingar verða að hætta að hugsa í staðalímyndum,“ bætir Anna við. Þau binda miklar vonir við vinnuna sem unnin var í dag og vilja að henni sé fylgt eftir. „Það er mikilvægast. Ef þessar ályktanir og hugmyndir eru ekki teknar alvarlega ef þetta gangslaust,“ segir Anna.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Sjá meira