Skemmdarverk í Gott í kroppinn: „Tjónið hleypur á milljónum“ Stefán Árni Pálsson skrifar 17. nóvember 2014 11:57 Gott í kroppinn er rekið af Sverri Kristjánssyni í stóru iðnaðareldhúsi að Ásbrú í Reykjanesbæ. „
Þetta var skemmdarverk fyrst og fremst,“ segir Sverrir Kristjánsson, eigandi fyrirtækisins Gott í kroppinn, en innbrot var framið í fyrirtækið um helgina og gengu hinir óboðnu gestir beinlínis berserksgang í húsnæðinu í Reykjanesbæ. Búið var að velta um tækjum, tölvum og öðrum munum. Ekki liggur fyrir hversu mikið af búnaðinum er ónýtur. Þá var búið að henda fötum, sem höfðu að geyma krydd, í gólfið. Í kæligeymslu var búið að steypa úr tveimur stórum bölum sem höfðu að geyma humarsúpu og að auki hafði hveiti verið sturtað á gólf. „Það virðist ekki hafa verið stolið neinu frá okkur. Öllu var rústað sem hægt var að rústa, tækjum tólum og vörum.“ Góður hluti af vörunum eru skemmdar. „Sem betur fer var ekki alveg allt eyðilagt en tjónið hleypur á milljónum. Núna erum við bara að taka hér til að koma staðnum í gott ástand svo hægt sé að byrja framleiða hér á ný og pakka inn vörum.“ Engar öryggismyndavélar eru á staðnum og því er lítið vitað um það hver hafi verið að verki. „Ég var hér með lögreglunni hér á laugardagskvöldið og ég held að það hafi náðst einhverjar upplýsingar en ég veit samt ekkert hvar rannsóknin stendur.“
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira