Börn þurfa að bíða í 8 mánuði eftir hjálp Svavar Hávarðsson skrifar 17. nóvember 2014 15:44 Óskastaða SÁÁ væri ef hægt væri að stórauka sálfræðiaðstoð við börn alkóhólista.
Frá því að SÁÁ hóf að veita börnum alkóhólista sálfræðiþjónustu hafa um 800 börn nýtt sér þjónustuna. Hins vegar er þörfin fyrir sálfræðiþjónustu langt um meiri en SÁÁ getur mögulega annað að óbreyttu. Biðin eftir viðtali er allt að átta mánuðir. „Þetta er allt of langur tími sem þessi hópur þarf að bíða eftir aðstoð, því þetta er hópur sem þarf oftast strax á hjálp að halda,“ segir Ása Margrét Sigurjónsdóttir sálfræðingur sem hefur umsjón með starfinu og hefur veitt börnum áfengis- og vímuefnasjúklinga sálfræðiþjónustu frá árinu 2010. Starfið hófst hins vegar árið 2008 og að sögn Ásu Margrétar hefur þeim fjölgað jafnt og þétt frá ári til árs sem sækjast eftir hjálp. Börnin eru á aldrinum átta til átján ára, en enginn aldurshópur er meira áberandi en annar. Ása Margrét bendir á að í upphafi hafi flest börnin átt foreldra sem voru í meðferð eða höfðu nýlega lokið við meðferð. Með tímanum hafi þetta breyst og sífellt fleiri börn komi sem eiga foreldra í neyslu. Ása segir að á hverju ári sé mögulegt að taka á móti 140 börnum, en hvert og eitt fær átta viðtöl. „En því miður er þörfin meiri en ég kemst yfir að sinna. Fyrir um mánuði síðan voru um 70 börn á biðlista,“ segir Ása Margrét en jafnframt að ekki hafi verið kannað hversu þörfin sé raunverulega mikil – og hvað það séu þá mörg börn sem búi við þessar erfiðu aðstæður á Íslandi. Erlendis liggja hins vegar fyrir kannanir á því hvað mörg börn búa á heimilum þar sem neysla er óhófleg. Á Norðurlöndunum, í Bandaríkjunum og á Bretlandi reynist það vera eitt af hverjum fjórum til fimm börnum sem eru aðstandendur alkóhólista – hvort sem það eru foreldrar, stjúpforeldrar eða eldri systkini. Eigi þessi hlutföll við á Íslandi er hægt að áætla að það séu rétt öðrum hvorum megin við 20.000 börn í þessum aðstæðum hér á landi. Ása segir að þessar tölur gætu verið nærri sanni, en spurð um hvað einkenni líðan þeirra barna sem koma til hennar í viðtal segir Ása að það sé mikill kvíði og slök sjálfsmynd. „En börnin eru jafn misjöfn og þau eru mörg og aðstæður þeirra einnig. Sum eiga foreldra í neyslu en önnur þar sem svo er ekki, og þetta er ósamanburðarhæft,“ segir Ása Margrét.Markmið þjónustu SÁÁ í hnotskurn - Að hjálpa barninu til að skilja betur aðstæður sínar og foreldra sinna og afleiðingar þeirra. - Að stuðla að vellíðan og velferð barnsins í nútíð og framtíð. - Að rjúfa þann þagnarmúr og einangrun sem skapast iðulega hjá barni í þessum aðstæðum. - Að barnið skilji betur hvað alkóhólismi er, hvernig hann þróast og hvaða afleiðingar hann getur haft. - Að barnið átti sig betur á stöðu foreldra sinna og þeim vanda sem þeir eiga við að stríða. - Að gera barnið hæfara til að takast á við og vinna úr tilfinningalegri vanlíðan, styrkja sjálfsmynd og félagsfærni. - Að fyrirbyggja neyslu áfengis og annarra vímuefna hjá barninu með því að auka meðvitund þess um þá ákvörðun, ábyrgð og val sem felst í að byrja neyslu.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Sjá meira