Innlent

Sigríður segir Gísla hafa beðið um upplýsingar um Omos

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Sigríður segist ekki hafa vitað að Gísli hafi lekið gögnunum.
Sigríður segist ekki hafa vitað að Gísli hafi lekið gögnunum. Vísir
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, óskaði eftir gögnum um málefni Tony Omos í símtölum sem hann átti við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum daginn sem fréttir birtust upp úr minnisblaði sem hann lak. Þetta segir Sigríður í yfirlýsingu til fjölmiðla.

Í samtölum sínum óskaði Gísli Freyr meðal annars eftir greinargerð frá embættinu um málefni Omos sem tengdust hælisumsókn hans og því að hann var eftirlýstur á þessum tíma. Talið var að hann væri í felum á Suðurnesjum, samkvæmt Sigríði. Hann hefur verið dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að leka gögnum um hælisleitandann.

Gísli hefur í dag neitað því að hafa rætt við Sigríði um Tony Omos í þessum samtölum. „Ég man ekki hvað við ræddum, en við ræddum ekki Tony Omos,“ sagði Gísli Freyr í samtali við Kjarnann í morgun. Það stangast á við það sem fram kemur í yfirlýsingu Sigríðar.

Sjá einnig: Atburðarásin í lekamálinu

Samskiptin áttu sér stað morguninn sem birtar voru fréttir upp úr minnisblaði ráðuneytisins sem Gísli Freyr hefur verið dæmdur fyrir að leka. Aðstoðarmaðurinn fyrrverandi hefur einnig viðurkennt að hafa bætt við setningu aftast í minnisblaðið þar sem Omos er bendlaður við mansal.

„Ekkert í samskiptum okkar Gísla Freys gaf til kynna að hann hafi lekið upplýsingum til fjölmiðla. Vitneskju mína um margrætt minnisblað hef ég úr fjölmiðlum og ég heyrði fyrst af játningu Gísla Freys í fjölmiðlum,“ segir hún í yfirlýsingunni.

Yfirlýsing Sigríðar í heild sinni:



Fyrst af öllu vil ég undirstrika að samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara, áttu umrædd samskipti mín við Gísla Frey Valdórsson sér stað eftir að minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos var lekið til fjölmiðla. Það hefur legið ljóst fyrir og kemur skýrt fram í gögnum málsins samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara.




Á þessum tíma voru, eins og algengt er, töluverð samskipti á milli ráðuneytisins og embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum um ýmis mál, enda ber embættinu að veita ráðuneyti, sem æðra stjórnvaldi, þær upplýsingar er það óskar.



Ég óskaði eftir því í dag við ríkissaksóknara að fá upplýsingar um símtölin sem DV vitnar til í umfjöllun sinni, með vísan til 1. mgr. 1. gr. fyrirmæla ríkissaksóknara nr. 1/2013 um aðgang að gögnum sakamála sem er lokið. Að morgni 20. nóvember 2013 átti ég, skv. gögnum frá ríkissaksóknara, tvö símtöl við Gísla Frey Valdórsson. Áður hafði ég hringt í hann til að svara skilaboðum en hann svaraði ekki. Gísli Freyr hringdi í mig kl. 09:41:55 og aftur kl. 09:56:53.



Í samtölum okkar óskaði Gísli Freyr m.a. eftir greinargerð frá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum um málefni Tony Omos er tengdust m.a. hælisumsókn hans og því að hann var eftirlýstur á þessum tíma og talinn vera í felum á Suðurnesjum. Umbeðin greinargerð var send Gísla Frey að kvöldi 20. nóvember kl. 21.21.



Ekkert í samskiptum okkar Gísla Freys gaf til kynna að hann hafi lekið upplýsingum til fjölmiðla. Vitneskju mína um margrætt minnisblað hef ég úr fjölmiðlum og ég heyrði fyrst af játningu Gísla Freys í fjölmiðlum.



Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara í dag liggur fyrir „að þær trúnaðarupplýsingar sem Gísli Freyr Valdórsson var sakfelldur fyrir að láta af hendi skv. dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-651/2014 lét hann fjölmiðlum í té (blaðamanni á Fréttablaðinu) fyrir kl. 22.50 að kvöldi 19. nóvember 2013. Þetta kemur fram í rannsóknargögnum lögreglu sbr. einnig dómur Hæstaréttar í máli nr. 403/2014 en þar segir m.a.:



„Af hálfu sóknaraðila kemur fram að í frétt sem birst hafi á forsíðu Fréttablaðsins 20. nóvember sl. sé fjallað um málefni A og að fréttin virðist vera byggð á umræddu minnisblaði. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi blaðið farið frá ritstjórn í prentun um kl. 22:50 hinn 19. nóvember. Þá hafi birst frétt um sama efni á mbl.is að morgni 20. nóvember sl., kl. 10:55. Í fréttinni komi fram að mbl.is hafi undir höndum „óformlegt minnisblað innanríkisráðuneytisins“ og megi ljóst vera að fréttin sé byggð á minnisblaðinu.““


Tengdar fréttir

Gísli Freyr bað samstarfsfólkið afsökunar

Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, bað samstarfsfólk sitt í innanríkisráðuneytinu afsökunar á lekanum í morgun.

Gísli Freyr er sáttur við dóminn

Gísli Freyr Valdórsson ætlar að una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og áfrýjar ekki til Hæstaréttar. Segist hafa fests í lygavef og vítahring.

Svona var atburðarásin í lekamálinu

Gagnvirk tímalína sem sýnir atburðarásina í lekamálinu sem varð til þess að Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.

Bjarni Ben: „Þetta er áfall fyrir okkur öll“

"Aðalatriði málsins eru þau að það er nú upplýst að sá sem treysti á sanngjarna málsmeðferð í dómsmálaráðuneytinu fékk ekki slíka meðferð,“ segir Bjarni.

„Góður maður hengdur“

Margir félagar Gísla Freys Valdórssonar vilja rísa upp honum til varnar og telja dóminn yfir honum þungan.

„Ég ber ekki ábyrgð á lögbrotum“

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, segist bera pólitíska ábyrgð á sínum undirmönnum en hún beri hins vegar ekki ábyrgð á lögbrotum. Hún segist jafnframt vera búin að segja af sér embætti.

Gísli ræddi við Sigríði daginn sem gögnin voru birt

Aðstoðarmaður innanríkisráðherra átti í talsverðum samskiptum við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, daginn sem fréttir birtust byggðar á leka úr ráðuneytinu.

Gísli Freyr sagði sig úr stjórn Fíladelfíu

Gísli Freyr Valdórsson hefur sagt sig úr stjórn og rekstrarráði kirkjunnar í dag. Þetta staðfesti Aron Hinriksson, forstöðumaður safnaðarins, í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×