Innlent

"Góður maður hengdur“

Jakob Bjarnar skrifar
Gísli Freyr umvafinn vinum og samherjum en nokkur fjöldi sendir honum baráttukveðjur og vitna um að hann sé einstaklega góður maður og nú reyndur.
Gísli Freyr umvafinn vinum og samherjum en nokkur fjöldi sendir honum baráttukveðjur og vitna um að hann sé einstaklega góður maður og nú reyndur.
„Niðurstaða málsins er að góður maður, sem gerði vissulega mistök, er hengdur fyrir nokkuð sem starfsbræður hans hjá hinu opinbera gera nánast daglega óáreittir,“ segir Davíð Þorláksson fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna.



Þungur dómur


Davíð ritar alllangan pistil á Facebooksíðu sína þar sem hann lýsir því yfir að honum þyki dómurinn yfir Gísla Frey Valdórssyni, fyrrverandi aðstoðarmanni Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, þungur, en Gísli var dæmdur í hinu svokallaða Lekamáli til átta mánaða skilorðsbundins dóms í dag. Ívitnuð orð eru niðurstaða Davíðs. Og, svo er um fjölmarga félaga og/eða flokksmanna Sjálfstæðisflokksins. Þeim finnst mörgum sem Þórðar- og refsigleði ríki. Einar Steingrímsson stærðfræðingur, sem fylgst hefur grannt með gangi mála er meðal þeirra sem þykir dómurinn ekki þungur og hann krefst þess að saksóknari áfrýi í málinu í grein á Eyjunni. En, það er utan efnis þessarar samantektar, heldur aðeins til að benda á að málið er visslega umdeilt.

„Maður sem er með hreint sakarvottorð og játaði afbrot sitt, þótt hann hefði auðvitað átt að gera það fyrr eins og hann hefur sagt, er dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi þar sem hámarksrefsing er 12 mánuðir. Tveir þriðju refsirammans eru því nýttir. Hvað ætla menn að dæma ef ákært verður fyrir leka á upplýsingum sem varða brýna almannahagsmuni?“ Davíð er langt í frá sáttur með dómskerfið, eins og sjá má á þessum orðum.



Hatersgonnahate


Ólafur Örn Nielsen, einnig fyrrverandi formaður SUS, er annar sem vill lýsa yfir eindregnum stuðningi við Gísla Frey en hann ritar á Facebookvegg sinn:

„Gísli Freyr Valdórsson er einn vandaðasti maður sem ég þekki og hann er maður að meiri að stíga fram með þeim hætti sem hann gerir nú og biðjast afsökunar. Traustari vin er vart hægt að hugsa sér og við höfum brallað margt saman í gegnum tíðina. Nú mætir hann afleiðingum gjörða sinna en ég veit að hann kemur tvíefldur aftur til leiks. Að öðrum ólöstuðum get ég vart hugsað mér meiri toppmann en Gísla. Það er nú bara einfaldlega þannig og það segi ég frá innstu hjartarótum. Gangi þér vel Gísli minn!“ skrifar Ólafur Örn og merkir færslu sína með svonefndu hashtag: „hatersgonnahate“.



Hvað með Gunnar Andersen?


Jónas Sigurgeirsson útgefandi er þekktur Sjálfstæðismaður og hann veltir málinu fyrir sér á sinni Facebooksíðu í morgun, áður en dómur féll og hann vill bera málið saman við mál Gunnars Andersen, eins og reyndar margir sem standa með Gísla Frey vilja gera:

„Spennandi að sjá hver dómurinn yfir Gísla Frey verður nú á eftir. Síðasti dómur sem ég man í lekamáli í héraðsdómi, var mál Gunnars Andersens, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, þegar hann lak í DV upplýsingum um fjármál Alþingmanns sem honum var í nöp við og vildi koma höggi á. Héraðsdómur dæmdi Gunnar í 2 milljóna króna sekt. Þótt ég sé ekki lögspekingur, þá tel ég brot forstjóra Fjármálaeftirlitsins og eins æðsta manns í löggæslu landsins miklu alvarlegra en brot Gísla Freys. Í því ljósi spái því að Gísli fái 500 þúsund króna sekt.“

Ýmsir fagna þessum vangaveltum Jónasar svo sem Sigurður Már Jónsson upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Jónas bætir svo við í athugasemd við eigin færslu: „Ekki var ég sannspár - 8 mánaða fangelsi skilorðsbundið er hlutskipti Gísla Freys. Miklu þyngri dómur en Gunnar fékk í héraðsdómi.“



Góður maður Gísli, og nú reyndur


Gunnlaugur Jónsson framkvæmdastjóri og þekktur frjálshyggjumaður er enn einn á Facebook sem tekur upp hanskann fyrir Gísla Frey og vottar um hversu vandaður maður hann er. Mjög margir eru til að lýsa velþóknun á skrifum Gunnlaugs sem eru enda spök:

„Ég hef kynnst Gísla Frey Valdórssyni lítillega og hann hefur komið mér fyrir sjónir sem einstaklega vandaður og heiðarlegur maður. Þess vegna er dálítið sorglegt að hann skuli hafa gert þau mistök sem hann hefur nú játað og axlað ábyrgð á. Fyrir það ætti a.m.k. að hrósa honum.

Þetta mál er því áminning um að bestu menn gera mistök og maður á aldrei að vera svo viss um eigið ágæti að maður sofni á verðinum gagnvart sjálfum sér.

Engu máli skiptir að opinberar stofnanir hafi verið hriplekar á síðustu árum, menn eiga ekki að leka sjálfir. Við getum bara borið ábyrgð á sjálfum okkur.

Gangi þér vel Gísli Freyr Valdórsson. Ég held að við þekkjum mörg þinn innri mann. Nú ertu ekki bara góður maður, heldur líka reyndur. Ég myndi treysta þér.“



„You‘ll be back.“


Þá eru fjölmargir sem senda Gísla Frey baráttukveðjur á Facebooksíðu hans, þar sem nefnt er að öll él stytti upp um síðir. Jón Axel Ólafsson athafnamaður er einn þeirra, Eyþór Arnalds stórnmála- og tónlistarmaður er annar og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sem hefur verið áberandi í ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins, svo aðeins fáein séu nefnd.

Og Tryggi Þór Herbertsson, sérfræðingur ríkisstjórnarinnar, segir: „You‘ll be back.“


Tengdar fréttir

Gísli Freyr bað samstarfsfólkið afsökunar

Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, bað samstarfsfólk sitt í innanríkisráðuneytinu afsökunar á lekanum í morgun.

Birgitta kallar eftir afsögn Hönnu Birnu

„Þetta breytir í raun ekki neinu nema að það er komið í ljós það sem maður vissi, að þetta skjal kom frá henni eða hennar nánasta starfsliði.“

Gísli Freyr er sáttur við dóminn

Gísli Freyr Valdórsson ætlar að una dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og áfrýjar ekki til Hæstaréttar. Segist hafa fests í lygavef og vítahring.

Svona var atburðarásin í lekamálinu

Gagnvirk tímalína sem sýnir atburðarásina í lekamálinu sem varð til þess að Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi.

Skaðabótakröfum á hendur Gísla Frey vísað frá dómi

Ákæra saksóknara og bótakröfur á hendur Gísla Frey Valdórssyni, aðstoðarmanni innanríkisráðherra, skulu reknar sem sitt hvort dómsmálið. Þetta var niðurstaða héraðsdóms Reykjavíkur í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×