Sleipiefnaþjófurinn lætur ekki finna sig Kjartan Atli Kjartansson skrifar 18. nóvember 2014 15:26 Sleipiefnaþjófurinn hefur ekki sést aftur í Akureyrarapóteki. Mynd/Akureyrarapótek
Lögreglan á Akureyri veit hver hinn svokallaði sleipiefnaþjófur er, en lögreglumönnum hefur ekki enn tekist að finna hann. Þetta segir lögreglumaður rannsóknardeildarinnar á Akureyri. Í byrjun október sagði Vísir frá því að maður hefði komið við í Akureyrarapóteki og stolið sleipiefni og smokkum í tvígang. Gauti Einarsson lyfjafræðingur hafði samband við lögreglu vegna málsins og afhenti henni upptökur úr öryggismyndavélum í apótekinu. Gauti skrifaði um málið á Facebook-síðu sína þar sem hann sagði: „Á ég að segja ykkur? Haldið ekki að sleipiefnabófinn hafi látið á sér kræla að nýju akkúrat 2 vikum eftir síðasta áhlaup. En hann rann mér sem fyrr úr greipum. Það gerir ein vika per brúsa sem verður að teljast nokkuð gott hjá honum. Samstarfskonur mínar eru allar komnar með Stokkhólmsheilkennið og finnst ég bara ómenni að vilja góma hann. En ég skal ná í „skottið” á honum þótt síðar verði,“ og bætti við: „Það hefði óneitanlega getað boðið upp á makleg málagjöld ef hann hefði svo ruglast og hnuplað tannlíminu.“Á brotaferil að baki Að sögn lögreglunnar á Akureyri er vitað hver maðurinn er, en hann hefur ekki enn verið handsamaður. „Þetta er sleipur náungi,“ segir lögreglumaður rannsóknardeildar. Sleipiefnaþjófurinn lætur ekki finna sig og telja lögreglumenn að honum sé ekki vel við lögregluna. Samkvæmt heimildum Vísis hefur þjófurinn ekki birst aftur í Akureyrarapóteki eftir að fréttin birtst þann 9. október. Sleipiefnaþjófurinn lét greipar sópa í apótekinu í tvígang. Í seinna skiptið sást hann ekki stela sleipiefni á myndbandsupptökunni, en samt hvarf sleipiefni á sama tíma og þjófurinn var inni í apótekinu. Gauti sagði við Vísi í október: „Ef sleipiefni hvarf fyrir tilstuðlan þjófsins, þá er greinilegt að hann er eitthvað að prófa sig áfram, að prófa nýjar tegundir.“
Tengdar fréttir Sleipiefnaþjófurinn snýr aftur Lögreglan á Akureyri hefur fengið myndir af manni sem stal smokkum og sleipiefni úr apóteki í bænum. "Það hefði óneitanlega getað boðið upp á makleg málagjöld ef hann hefði svo ruglast og hnuplað tannlíminu.“ 9. október 2014 16:12 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira
Sleipiefnaþjófurinn snýr aftur Lögreglan á Akureyri hefur fengið myndir af manni sem stal smokkum og sleipiefni úr apóteki í bænum. "Það hefði óneitanlega getað boðið upp á makleg málagjöld ef hann hefði svo ruglast og hnuplað tannlíminu.“ 9. október 2014 16:12