Innlent

Erlendrar konu leitað við Heklu

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Heklu.
Frá Heklu. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli leituðu í kvöld erlendrar ferðakonu sem varð viðskila við ferðafélaga sína á Heklu. Konan var í símasambandi og gat gefið vísbendingu um hvar hún var með því að miða ljósin á vindmyllum við Búrfell við ljós björgunarsveitabíla.

Samkvæmt tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fannst konan í hrauninu vestan við Heklu, ekki langt frá vegi. Var hún í þokkalegu ástandi miðað við aðstæður enda ágætisveður á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×