Vilja lög um starfshætti eftirlitsstofnana Stefán Árni Pálsson skrifar 19. nóvember 2014 15:05 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Vísir/Vilhelm
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, skipaði þann 27. júní 2014 vinnuhóp sem falið var að fara yfir lög, reglur og stjórnsýslu mikilvægra eftirlitsstofnana og meta hvernig viðmið um vandað regluverk og stjórnsýslu eru uppfyllt, með einföldun, samræmi og skilvirkni að markmiði. Jafnframt var hópnum falið að móta sýn á bestu framkvæmd varðandi starfshætti eftirlitsstofnana en þetta kemur fram í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu. Vinnuhópurinn hefur nú skilað fyrstu áfangaskýrslu þar er að finna tillögur sem miða að því að bæta starfshætti eftirlitsstofnana þannig að nauðsynlegum varnaðarmarkmiðum með opinberu eftirliti sé náð á sem einfaldastan máta og með sem minnstum tilkostnaði fyrir ríkið, sveitarfélög og atvinnulíf. Hafði hópurinn hliðsjón af vinnu OECD, Alþjóðabankans og fjölmargra þjóðríkja sem hafa á undanförnum árum og áratugum verið unnið mikið starf til að stuðla að betri og skilvirkari starfsháttum eftirlitsstofnana. Helstu tillögur vinnuhópsins eru að: • sett verði almenn lög um starfshætti eftirlitsstofnana og annarra aðila sem hafa opinbert eftirlit með höndum, • heildarendurskoðun verði gerð á eftirlitsstofnunum þar sem verkefni þeirra verða greind og að því búnu verði verkefni sameinuð og samþætt, • sett verði sérlög um hverja eftirlitsstofnun fyrir sig sem afmarka stjórnskipulag, valdheimildir og starfsemi viðkomandi eftirlitsstofnana, • settar verði reglur sem tryggja að eftirlitsstofnunum sé gert að greina áhættur, beina eftirliti sínu að því að draga úr þeirri áhættu sem skilgreind hefur verið og svo meta árangur af þeim eftirlitsaðgerðum, • fjárveitingar til eftirlitsstofnana verði grundvallaðar á áhættugreiningu og árangursmati, • settar verði reglur um frammistöðumat og gæðastjórnun eftirlitsstofnana til að tryggja gæði í starfsemi þeirra, • leitast verði við að samræma kæruleiðir og úrskurðarnefndir til að einfalda það kerfi frá því sem nú er og staðla það eins og kostur er, • tekið verði upp þinglegt eftirlit þar sem þingnefnd verði falið það verkefni að hafa eftirlit með starfsemi eftirlitsstofnana, • unnið verði markvisst að því að efla aðhald markaða við reglufylgni, sem er til þess fallið að daga úr þörf fyrir sérstakt eftirlit. Í hópnum eiga sæti Skúli Sveinsson formaður, Garðar G. Gíslason varaformaður, Jón Gunnarsson alþingismaður, Jóhanna María Sigmundsdóttir alþingismaður, Gísli M. Auðbergsson lögmaður og Katrín Pétursdóttir framkvæmdastjóri, auk þess sem Ásmundur Einar Daðason alþingismaður og aðstoðarmaður forsætisráðherra starfaði með hópnum.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira