„Kaldar kveðjur eftir 35 ára starf“ Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 19. nóvember 2014 19:20
Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir að stjórnendum Landspítalans sé fullkunnugt um það álag sem sé á starfsfólki við ræstingar. Þeir láti sem þeim komi það ekki við, þar sem störfin hafi verið boðin út. Þannig ætli menn líka að hafa það í stjórnarráðinu en Ríkiskaup auglýsa nú eftir tilboðum í ræstingar þar eftir að átján ræstingakonum var sagt upp störfum. Fyrrum ræstingakonur í stjórnarráðinu, þær Bára Valtýsdóttir og Hulda Eygló Karlsdóttir, sem var sagt upp störfum á dögunum gáfu lítið fyrir þessa sparnaðarleið í samtali við kvöldfréttir Stöðvar 2. Flestar konurnar þurfi að fara á atvinnuleysisbætur enda lítið um störf fyrir konur sem eru um og yfir sextugt. Sigurður segir að menn þar ætli greinilega að bjóða ræstingarnar út og láta síðan eins og þeim komi aðbúnaður starfsfólksins ekki við. „Ég segi hinsvegar, þetta mál er á borði ráðherra,“ segir Sigurður í samtali við kvöldfréttir Stöðvar 2. Tólf Pólverjar sjá nú um að ræsta 26 þúsund fermetra á Landspítalanum í Fossvogi en 32 starfsmenn höfðu sama starf með höndum áður en ræstingar voru boðnar út skömmu eftir hrun. Það var fyrirtækið Hreint sem hreppti verkið og starfsmennirnir kveinka sér undan álagi og kvarta yfir kjörum sínum. Hörpu Ólafsdóttur hagfræðingi var hent út af fundi með yfirmönnum fyrirtækisins sem starfsmenn höfðu beðið hana um að sitja. „Þetta var ótrúlegt atvik og mikil vanvirða við fólkið sem beðið hafði um aðstoð Eflingar á fundinum,“ segir Harpa sem segist aldrei hafa lent í neinu viðlíka í starfi. Þetta varð til þess að þeir ellefu starfsmenn sem mættir voru gengu allir af fundi.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira