Innlent

Árásarmennirnir birtust skyndilega

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mennirnir gerðu ekki tilraun til að ræna ungu konuna.
Mennirnir gerðu ekki tilraun til að ræna ungu konuna. Vísir/Vilhelm
19 ára stúlka sem varð fyrir árás á göngu sinni við Rauðavatn í gærmorgun hefur kært hana til lögreglu. Þrír menn sátu fyrir stúlkunni og birtust henni skyndilega.

Að sögn Kristjáns Inga Kristjánssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru tildrög árásarinnar með öllu óljós. Svo virðist sem hún hafi verið algjörlega án tilefnis.

Kristján segir að stúlkan hafi ekki þekkt til mannanna. Þeir voru ekki grímuklæddir en talið er að mennirnir séu íslenskir. Þá gerðu mennirnir ekki tilraun til að ræna stúlkuna.

Árásin varð um klukkan hálf átta í gærmorgun en í kjölfarið leitaði stúlkan til vinkonu sinnar. Sú hafði frumkvæði að því að leita til lögreglu vegna málsins. Var stúlkan skoðuð á slysadeild en reyndust líkamlegir áverkar minniháttar. Teknar hafa verið skýrslur af stúlkunni og vinkonu hennar.

Lögreglan hefur málið til rannsóknar og hvetur fólk sem var á ferðinni við Rauðavatn í gærmorgun eða hefur frekari upplýsingar að hringja í síma 444-1000.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×