Garnaveiki í Héraðshólfi Samúel Karl Ólason skrifar 5. nóvember 2014 15:51 Veikin uppgötvaðist við eftirlit dýralæknir Matvælastofnunar í sláturhúsi og af þeim níu sýnum sem send voru til greiningar voru fimm jákvæð. Vísir/Magnús Hlynur
Garnaveiki var staðfest á sauðfjárbúi í Héraðshólfi á mánudaginn, nánar tiltekið í Hróarstungu. Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun hefur garnaveiki ekki greinst á því svæði síðan fyrir fjárskipti sem voru um árið 1990. „Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum. Á bæjum sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu. Héraðsdýralæknir Matvælastofnunar mun í kvöld halda fund með bændum í Hróarstungu þar sem viðbrögð við sjúkdómnum verða rædd,“ segir í tilkynningunni. Veikin uppgötvaðist við eftirlit dýralæknir Matvælastofnunar í sláturhúsi og af þeim níu sýnum sem send voru til greiningar voru fimm jákvæð. Sjúkdómurinn orsakast af lífseigri bakteríu af berklaflokki og helsu einkenni hennar eru hægfara vanþrif ásamt skituköstum. Einnig getur verið nokkuð um „heilbrigða smitbera“ í hjörðum sem veikin kemur upp í. Meðgöngutími í sauðfé er 1-2 ár eða lengri. Garnaveikibakterían veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saurnum og geta lifað í eitt til eitt og hálft ár í óhreinindum og pollum umhverfis gripahús, við afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast út um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni. Markmið reglugerðar um garnaveiki er að útrýma henni og þar eru meðal annars ákvæði um þær takmarkanir sem gilda um garnaveikibæi. „Þar á meðal er að óheimilt er að láta til lífs sauðfé, geitur eða nautgripi í 10 ár frá síðustu greiningu á garnaveiki eða vanrækslu á bólusetningu. Reglugerðin kveður einnig á um skyldu til bólusetningar sauðfjár á tilteknum svæðum á landinu.“ Frekar upplýsingar um veikina má sjá á heimasíðu Matvælastofnunar.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira