Formleg afhjúpun á verkum Ásmundar í Seljahverfi Stefán Árni Pálsson skrifar 7. nóvember 2014 10:30 Myndin sem fylgir með fréttinni er af verkinu Móðir mín í kví, kví eftir Ásmund Sveinsson.
Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson afhjúpaði verkin Móðir mín í kví, kví og Fýkur yfir hæðir eftir Ásmund Sveinsson við Seljatjörn og Seljakirkju í morgun. Þetta eru fyrstu útilistaverk sem Reykjavíkurborg hefur sett upp í Seljahverfi. Á sama tíma verður opnuð sýning á listaverkum barna í fjórða bekk Seljaskóla í Seljakirkju. Þema sýningarinnar er þjóðsögur og verk Ásmundar Sveinssonar en sýningin er unnin undir handleiðslu kennara í Seljaskóla og í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Bókmenntaborgina. Öll börn í þriðja, fjórða og fimmta bekk Seljaskóla tóku þátt í viðburðinum. Viðburðurinn hófst við Seljatjörn þar sem borgarstjóri afhjúpaði verkið Móðir mín í kví, kví eftir Ásmund Sveinsson . Þaðan var farið í skrúðgöngu að Seljakirkju þar sem borgarstjóri afhjúpaði verkið Fýkur yfir hæðir. Þá var opnuð sýning á verkum barnanna sem þau hafa unnið að undanfarnar vikur í skólanum og í Ásmundarsafni. Á sýningunni voru sýndar klippimyndir með tilvísun í Krummasögur, myndasögur með tilvísun í þjóðsöguna um Bakkabræður og leirverk sem hafa vísun til álfasagna. Alls tóku 60 börn þátt í verkefninu en þau hafa jafnframt sótt sér efnivið í verk Ásmundar Sveinssonar. Þau fengu m.a. leiðsögn í Ásmundarsafni um verk Ásmundar og unnu leirverk í safninu.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira