Samið um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu til sex ára Stefán Árni Pálsson skrifar 7. nóvember 2014 13:18 vísir
Samningar hafa tekist milli Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. Samningurinn tekur gildi 1. janúar næstkomandi og gildir til sex ára. Heilbrigðisráðherra segir samninginn kærkominn eftir langvarandi óvissu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands. Heilbrigðisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, forstjóri Landspítalans og stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins staðfestu samninginn með undirritun í nýju húsnæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins við Skarhólabraut í Mosfellsbæ í dag. Samningurinn er gerður á grundvelli fjárveitinga til verkefnisins og byggir að meginstofni á bráðabirgðasamningi um sjúkraflutninga sem gerður var í sumar. Hann tekur til allra bráðaflutninga auk flutninga fyrir Landspítala og aðrar stofnanir. Helsta nýmæli samningsins felst í því að greiðslur fyrir þjónustuna taka að hluta til mið af fjölda sjúkraflutninga í stað eingöngu fastra mánaðarlegra greiðslna áður. Þannig felst greiðsluþátttaka sjúkratrygginga og Landspítala annars vegar í föstum mánaðarlegum greiðslum og hins vegar í greiðslum fyrir hvern flutning. Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi sjúkraflutninga verði um 23.000 á ári. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir samninginn kærkominn eftir langvarandi óvissu: „Bráðabirgðasamkomulagið sem náðist í sumar var mikilvægur áfangi eftir tveggja og hálfs árs samningsleysi um þessa mikilvægu öryggisþjónustu. Ég hef verið þeirrar skoðunar að aðskilnaður sjúkraflutninga og slökkvistarfs á höfuðborgarsvæðinu væri óskynsamlegur, bæði faglega og fjárhagslega. Það er því mikils virði að langtímasamningur sé í höfn og ég er viss um að samstarfið sem þarna er innsiglað verði bæði farsælt og hagstætt fyrir alla aðila.“Fallið frá dómsmáli Samhliða undirritun samningsins var gengið frá samkomulagi um sérstakt uppgjör vegna þjónustu SHS frá 1. janúar 2012 til 30. júní 2014 en SHS sinnti á þessu tímabili sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir að enginn samningur hafi þá verið í gildi um þjónustuna. Með þessu samkomulagi verður jafnframt fellt niður dómsmál, sem SHS hafði höfðað gegn íslenska ríkinu vegna greiðslna fyrir þá þjónustu sem SHS veitti á ofangreindu tímabili. Eigendur SHS eru sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Fleiri fréttir Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjá meira