Hefur verulegar áhyggjur af framtíð fiskmarkaða á Íslandi Atli Ísleifsson skrifar 9. nóvember 2014 12:34 SFÚ segir að einyrkjar sem verið hafi með sjálfstæðar útgerðir hafi selt sínar aflaheimildir með þeim afleiðingum að mikil samþjöppun sé að verða í greininni. Vísir/GVA
Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) hefur verulegar áhyggjur af framtíð fiskmarkaða á Íslandi. Framboð hráefnis hafi dregist saman og þeir einyrkjar sem verið hafa með sjálfstæðar útgerðir hafa selt sínar aflaheimildir með þeim afleiðingum að mikil samþjöppun er að verða í greininni. Í tilkynningu frá samtökunum kemur fram að ef ekkert verði að gert er framtíð fiskmarkaða á Íslandi í uppnámi. Fiskmarkaðirnir séu stærstu birgjar aðildarfyrirtækja SFÚ og því ógni þessi þróun framtíð aðildarfyrirtækja SFÚ. „Strax í byrjun árs 2014 var gjaldskrá stærsta fiskmarkaðar landsins breytt kaupendum í óhag. Fiskmarkaður Íslands stóð einn að þessari hækkun fór þetta beint gegn stefnu stjórnvalda um verðstöðvun sem þá var í gildi. Ráðherra aðhafðist ekkert í málinu þrátt fyrir að honum hafi ítrekað verið gerð grein fyrir því og alvarleika þess. Kostnaður kaupenda við kaup á markaði hækkaði um tugi prósenta við þessa breytingu. Ein afleiðing þessa er að enn frekar hefur fjarað undan fiskmörkuðum. SFÚ fagnar því að flestir aðrir markaðir hafa ekki fylgt fordæmi Fiskmarkaðar Íslands um stórauknar álögur á kaupendur. SFÚ vekur athygli á því að auknar álögur á fiskkaupendur á mörkuðum falla beint á íslenska neytendur. SFÚ telur mikilvægt að skiptaverð verðlagsstofu gildi um uppgjör við sjómenn hvort sem um er að ræða bein viðskipti með fisk eða sölu á markaði. Slík breyting leiðir til samræmis í launakjörum sjómanna auk þess sem hún tryggir aukið framboð á fiskmörkuðum. SFÚ óskar nýjum samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) velfarnaðar í sínum störfum. Á þeim vettvangi eru mörg stór mál óleyst, þar með talin verðmyndun á fiski. SFÚ vonast til að aðkoma hinna nýju samtaka að þeim málum verði með uppbyggilegum hætti. Ástæða er til bjartsýni í þeim efnum þar sem hagsmunir SFÚ og hinna nýju samtaka eru í stórum dráttum hinir sömu og nýir forystumenn SFS gefa tilefni til bjartsýni um að að ný samtök vinni á breiðum grundvelli með hagsmuni allrar greinarinnar að leiðarljósi. SFÚ lýsir vilja sínum til samstarfs við SFS í þágu heildarhagsmuna íslensks sjávarútvegs. Slíkt samstarf getur mögulega leitt til sameiningar SFS og SFÚ,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira