Fótbolti

Lars: Nánast fullkominn varnarleikur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn fögnuðu vel og innilega eftir leikinn í kvöld.
Leikmenn fögnuðu vel og innilega eftir leikinn í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska landsliðsins, var rólegur og yfirvegaður þegar hann gekk inn á blaðamannafund eftir frækinn 2-0 sigur á Íslandi í undankeppni EM 2016 í kvöld.

Eftir sigurinn er Ísland með fullt hús stiga að loknum þremur umferðum og markatöluna 8-0. Enginn óraði fyrir þessari mögnuðu byrjun Íslands sem fer vitanlega í sögubækurnar.

„Varnarleikurinn var nánast fullkominn,“ voru fyrstu viðbrögð Lars á fundinum. „Auðvitað hefði ég viljað halda boltanum betur en þegar maður skorar snemma gegn liði eins og Hollandi er skiljanlegt að leikurinn þróist á þennan hátt.“

„En þó svo að varnarleikurinn hafi verið í heimsklassa má ekki gleyma því að við sköpuðum færi líka. Ég held að hvort lið hafi átt þrjár marktilraunir. Það eru því til margar mismunandi leiðir til að ná árangri í fótbolta.“

„Öll lið sem ná árangri eru vel skipulögð og með skýra hugmynd um hvernig þau eiga að spila. Það sem við lærðum af síðustu undankeppni hefur borgað sig vel nú.“

Hann hrósaði einnig starfsliði KSÍ og öflugri umgjörð í kringum landsliðið. Það hafi reynst vel þegar jafn stutt er á milli leikja en Ísland vann á föstudagskvöld 3-0 sigur á Lettlandi ytra. „Allt læknaliðið var frábært og viðhorf leikmanna var frábært. Þeir hvíldu vel, borðuðu vel og gerðu allt rétt á æfingum.“

Lagerbäck sagði að þessi frábæra byrjun liðsins í undankeppninni eigi sér margar skýringar. Ein þeirra sé að liðið hafi ákveðið að æfa frekar saman þegar undirbúningur fyrir undankeppnina hófst í stað þess að spila æfingaleik.

„Allt liðið náði virkilega vel saman í þessari viku og þeir dagar nýwttust mjög vel. Ég og Heimir vorum búnir að greina síðustu undankeppni og sýndum í kvöld hversu vel við getum varist. Það hófst með Jóni Daða og Kolbeini sem voru frábærir sem fremstu varnarmenn.“

Lagerbäck segir að liðið hafi lært mikið af síðustu undankeppni sem sé mikilvægt, ekki síst í svo ungu liði eins og Ísland teflir fram nú.

„Við höfum bætt okkur, bæði í vörn og sókn. Vörnin var góð í flestum leikjum okkar í síðustu undankeppni en nú hefur hún tekið annað framfaraskref. Í kvöld var hún næstum eins góð og hún getur orðið.“

„Við höfum líka bætt sóknarleikinn. Leikmenn lesa aðstæður betu rog vita hvernig þeir eiga að vinna saman, bæði í vörn og sókn. Allir þekkja sín hlutverk og þeir taka sárafáar rangar ákvarðanir.“

Hann segir að viðhorf leikmanna hafi verið frábært síðan hann tók við liðinu og hann óttast ekki að leikmenn ofmetnist nú eftir þessa frábæru byrjun.

„Ég hef ekki séð neitt sem bendir til þess. Þessum leikmönnum líkar virkilega vel við hvorn annan og vilja koma heim og spila fyrir hönd sinnar þjóðar. Þegar þeir hittast eru þeir eins og skólabörn að hausti.“

„Það kæmi mér mjög á óvart ef leikmenn færu að breyta viðhorfi sínu nokkuð. En ef það gerist munum við og starfsmennirnir gera allt sem við getum til að halda þeim á jörðinni. Við þurfum að vera eins góðir áhugamannasálfræðingar og mögulegt er.“


Tengdar fréttir

Robben: Hrósa Íslandi fyrir góðan varnarleik

Arjen Robben hrósaði íslenska liðinu fyrir góðan varnarleik eftir 2-0 sigur Íslands á Hollandi í kvöld en sagði jafnframt að Holland hafi gefið Íslandi tvö mörk í leiknum.

Kolbeinn: Gaman fyrir mig að koma á æfingu

"Ég mæti til Hollands með bros á vör. Þetta var frábær sigur,“ sagði Kolbeinn Sigþórsson, framherji íslenska landsliðsins, eftir 2-0 sigurinn á Hollandi í kvöld.

Gylfi skellti í sig töflum eftir leikinn

"Það er aldrei slæmt að taka þrjú eða sex stig á móti honum,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson, öðru nafni martröð Robin van Persie.

Birkir Bjarna: Var Robben að spila?

Birkir Bjarnason fiskaði vítaspyrnuna sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr á 10. mínútu. Hann var skiljanlega sáttur eftir sigurinn gegn Hollandi.

Gylfi markahæstur í undankeppninni

Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað fjögur mörk í þremur fyrstu leikjum Íslands í undankeppni EM 2016 og er nú markahæsti leikmaður undankeppninnar ásamt tveimur öðrum leikmönnum.

Jón Daði: Varnarleikurinn var stórkostlegur

"Þetta er alveg frábært, frábær dagur fyrir íslensku þjóðina,“ sagði Jón Daði Böðvarsson sem átti magnaðan leik í framlínu Íslands gegn Hollandi á Laugardalsvelli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×