Íslenski boltinn

Atli Viðar: Hef ekki legið í Heimi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Atli Viðar reynir að skora framhjá Ingvari Jónssyni í Garðabænum.
Atli Viðar reynir að skora framhjá Ingvari Jónssyni í Garðabænum. vísir/daníel
Atli Viðar Björnsson er þriðji markahæsti leikmaður Pepsi-deildar karla og næstmarkahæsti leikmaður FH. Þessi öflugi Dalvíkingur hefur þó ekki fengið að vera í byrjunarliði FH í deildarleik síðan FH mætti ÍBV þann 10. ágúst.

Hann hefur skorað átta mörk fyrir FH í Pepsi-deildinni í sumar og alls 106 mörk í 235 leikjum í deild og bikar fyrir Fimleikafélagið undanfarin þrettán ár.

Atli Viðar er einn dyggasti þjónn FH í sögunni. Svo mikið er víst. En hann hefur ekki þrýst á þjálfarann Heimi Guðjónsson um sæti í byrjunarliðinu - hann vill frekar láta verkin tala sínu máli.

„Ég reyni að leggja mig fram á æfingum og sýna fram á að ég eigi skilið að fá tækifærið,“ sagði Atli Viðar hógvær að venju. „Auðvitað vill maður spila alla leiki. Þannig er það hjá mér eins og öllum öðrum.“

Atli Viðar fagnar marki í leik gegn ÍBV árið 2006.Vísir/E. Ól.
Atli Viðar hefur tekið þátt í öllum sex Íslandsmeistaratímabilum FH og hann varð þar að auki bikarmeistari með liðinu árið 2010. Hann komst reyndar í bikarúrslitaleikinn árið 2007 en þá með liði Fjölnis - sem lánsmaður frá FH. Hann fékk ekki að taka þátt í umræddum úrslitaleik sem FH-ingar unnu í framlengingu, 2-1.

„Við erum með reynt lið og margir okkar hafa unnið titla og fleiri en einn. Við þekkjum þetta vel,“ segir Atli Viðar og neitar því ekki að þetta gæti komið FH-ingum vel.

„Ég tel því að spennustigið hjá okkur verði í lagi þegar kemur að leiknum. Við verðum klárir í hvað sem bíður okkar.“

Hér fagnar Atli Viðar í leik með Fjölni árið 2007.Vísir/Pjetur
Atli Viðar vonast til að hann fái tækifæri á laugardaginn og allra helst að fagna marki og Íslandsmeistaratitli fyrir framan rúmlega sex þúsund áhorfendur.

„Ég iða í skinninu fyrir því að taka þátt í leiknum. Ég neita því ekki að það yrði gaman að skora og fagna titlinum. Ef það væri ekki þannig þá ætti maður að hætta þessu.“

En eftir þrettán ára glæsilegan feril í Hafnarfirðinum - telur Atli Viðar að leikurinn á morgun verði hans síðasti í búningi FH?

„Ég ætla ekkert að tjá mig um það. Það er leikurinn á laugardaginn sem skiptir öllu máli og framhaldið kemur svo í ljós.“


Tengdar fréttir

Atli Viðar Björnsson eini nýliðinn í Slóvakíuhópnum

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, hefur valið FH-inginn Atla Viðar Björnsson í hóp sinn fyrir vináttulandsleik á móti Slóvakíu á Laugardalsvelli miðvikudaginn 12. ágúst. Atli Viðar er eini nýliðinn í hópnum að þessu sinni.

Atli Viðar Björnsson úr leik hjá FH

Íslandsmeistarar FH hafa orðið fyrir enn einu áfallinu eftir að í ljós kom að framherjinn Atli Viðar Björnsson er með slitin krossbönd í hné og verður frá keppni í hátt í eitt ár. Atli Viðar meiddist í leiknum við Grindvíkinga í gær, en þetta er í annað sinn á nokkrum árum sem hann slítur krossbönd í þessu sama hné.

Kærum okkur ekki um neina forgjöf

"Það liggur ljóst fyrir í samningnum sem gerður var milli félaganna að lánsmenn FH mega ekki spila gegn félaginu sínu í bikarkeppninni og það er klárt, en það getur vel verið að við tökum aðra ákvörðun þegar nær dregur," sagði Pétur Stephensen, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH í samtali við Vísi í dag þegar hann var spurður hvort FH-ingarnir þrír sem leika sem lánsmenn hjá Fjölni fengju að spila úrslitaleikinn í Visa-bikarnum gegn FH.

Atli Viðar heldur sæti sínu í landsliðinu

Ólafur Jóhannesson hefur valið landsliðið sem mætir Noregi í undankeppni HM 2010 á laugardaginn og Georgíu í vináttulandsleik á miðvikudaginn í næstu viku.

FH er bikarmeistari karla

FH-ingar eru bikarmeistarar karla í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Fjölni í framlengdum leik. Matthías Guðmundsson var hetja FH-inga en hann skoraði bæði mörk liðsins í dag.

Atli Viðar framlengir við FH

Stuðningsmenn FH halda áfram að fá góð tíðindi en FH-ingar hafa sent frá sér fréttatilkynningar í bunkum í þessari viku. Nú er það orðið staðfest að Atli Viðar Björnsson hefur framlengt við félagið.

Atli Viðar: Held með Fjölni

Atli Viðar Björnsson, leikmaður FH sem var í láni hjá Fjölni í sumar, segist ætla að styðja Fjölnismenn í bikarúrslitaleik liðanna á morgun.

Hetja Fjölnis fær ekki að spila gegn FH

Komin er upp ansi sérstök staða nú þegar ljóst er að Fjölnir leikur við FH í úrslitaleik VISA-bikarsins. Þrír leikmenn Fjölnis sem leikið hafa stórt hlutverk með liðinu í sumar eru samningsbundnir FH en í láni hjá Fjölni og fái ekki að leika í úrslitaleiknum.

Atli og Heimir leika ekki gegn FH

Knattspyrnudeild FH hefur ákveðið að gerður samningur milli FH og Fjölnis skuli standa. Því munu þeir Atli Viðar Björnsson og Heimir Snær Guðmundsson ekki leika með Fjölni gegn FH í úrslitaleik VISA bikarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×