Bergsteinn ráðinn framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi Stefán Árni Pálsson skrifar 8. október 2014 12:13 Stefán Ingi Stefánsson fráfarandi framkvæmdastjóri, Svanhildur Konráðsdóttirformaður stjórnar UNICEF, Gunnar Hansson, Líney Rut Halldórsdóttir, Karl Blöndal, Margrét Hallgrímsdóttir, Bergsteinn Jónsson nýr framkvæmdastjóri. visir/aðsend
Í samstarfi við Capacent Ráðningar hefur Stjórn UNICEF á Íslandi ráðið Bergstein Jónsson sem framkvæmdastjóra landsnefndar UNICEF á Íslandi. Bergsteinn var settur í starfið á fundi stjórnar í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi. Bergsteinn Jónsson hefur unnið hjá UNICEF á Íslandi síðan í október 2006 og annast öll verkefni landsnefndarinnar sem ekki snúa að kynningarmálum og fjáröflun, þar á meðal réttindagæslu barna á Íslandi og framkvæmd þróunarverkefna erlendis. Hann er menntaður mannfræðingur frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám við Hróarskelduháskóla í alþjóðlegum þróunarfræðum og samskiptum menningarheima. Fyrr í sumar sagði Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF starfi sínu lausu. Nú hefur Bergsteinn Jónsson verið settur í starf framkvæmdastjóra. „Það er vissa stjórnar að úr hópi þeirra mörgu umsækjenda sem sóttu um starfið er Bergsteinn Jónsson best til þess fallinn að taka við keflinu og halda uppi því mikla og góða starfi sem unnið hefur verið frá stofnun landsnefndar UNICEF á Íslandi,“ segir í tilkynningunni. Stefán Ingi Stefánsson, fráfarandi framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, leiddi undirbúning að stofnun landsnefndar UNICEF á Íslandi árið 2003 og hefur verið framkvæmdastjóri frá formlegri stofnun hennar í mars 2004. Hann heldur nú til Panama þar sem hann mun áfram starfa í þágu barna í hjá UNICEF sem yfirmaður fjáröflunar og samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja í rómönsku Ameríku og Karíbahafi. „Stjórn og starfsfólk UNICEF á Íslandi þakkar Stefáni Inga fyrir ötult starf undanfarinn áratug og býður á sama tíma Bergstein hjartanlega velkominn til starfa.“
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira