Dýr á stærð við strætó sem gefa frá sér hljóð hærri en í þotu Hrund Þórsdóttir skrifar 4. september 2014 20:00
Stærsta hvalasýning í Evrópu verður opnuð við Fiskislóð á Granda í Reykjavík á fimmtudaginn. Að sýningunni standa sjóðurinn Icelandic Tourism Fund og frumkvöðullinn Hörður Bender en á stefnuskrá sjóðsins, sem er í eigu Icelandair Group, Landsbankans og nokkurra lífeyrissjóða, er að fjárfesta í uppbyggingu ferðaþjónustu og fjölga afþreyingarkostum fyrir ferðamenn. „Hvalir eru vissulega ákaflega spennandi dýr. Margir koma til Íslands til þess eins að fara í hvalaskoðun og þetta er í raun bara til að útvíkka og dýpka þá upplifun,“ segir Stella Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar Whales of Iceland. Gólfflötur safnsins verður um 1700 fermetrar og er þetta stærsta hvalasýning í Evrópu. „Það er að segja, við verðum með flest hvalalíkön í fullri stærð og við munum bjóða gestum að sjá alla þá 23 hvali sem hafa fundist við Íslands strendur,“ segir Stella. Hún segir hvalina spennandi dýr sem flestir viti í raun lítið um. Hjartað í meðalstórum hnúfubak vegur til dæmis tæplega 200 kíló, eða á við þrjár fullorðnar manneskjur og búrhvalurinn, sem er ásamst steypireiðinni háværasta dýr jarðar, getur gefið frá sér hljóð sem er hærra en í þotu að taka á loft. Sýningin verður gagnvirk og þar verður meðal annars hrefna með skjám þar sem hægt verður að skoða innyfli hennar. Stella segir fólk heillast af hvölum vegna stærðar þeirra. „Þótt við þekkjum tölurnar um stærð þeirra gerum við okkur ekki grein fyrir henni fyrr en við sjáum þá. Sumir hvalir eru á við strætisvagn á stærð. Þeir eru svo gríðarlega stórir og við svo lítil.“
Tengdar fréttir Stærsta hvalasýning í Evrópu í fullum undirbúningi Alls verða til sýnis líkön af tuttugu og þremur hvölum í fullri stærð sem allir lifa við Íslandsstrendur. 13. ágúst 2014 17:29 Stærsta hvalasafn í Evrópu Tuttugu og þrjú líkön af hvölum í fullri stærð eru nú á leið til landsins. Þau munu prýða nýtt hvalasafn sem verið er að reisa á úti á Granda. 24. maí 2014 21:00 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Stærsta hvalasýning í Evrópu í fullum undirbúningi Alls verða til sýnis líkön af tuttugu og þremur hvölum í fullri stærð sem allir lifa við Íslandsstrendur. 13. ágúst 2014 17:29
Stærsta hvalasafn í Evrópu Tuttugu og þrjú líkön af hvölum í fullri stærð eru nú á leið til landsins. Þau munu prýða nýtt hvalasafn sem verið er að reisa á úti á Granda. 24. maí 2014 21:00