Frétti fyrst af dómnum frá þeim sem braut á henni kynferðislega Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 24. maí 2014 20:15 Dóttir konunnar sem Vísir ræddi voru sem fyrr segir dæmdar 300 þúsund krónur í miskabætur þrátt fyrir að móðirin hafi fyrir hönd dóttur sinnar farið fram á 1,3 milljónir í bætur.
Móðir stúlku sem voru dæmdar 300 þúsund krónur í miskabætur vegna kynferðisbrots sem stúlkan varð fyrir þegar hún var 14 ára er ekki sátt við hversu langan tíma málið var í meðferð hjá lögreglu né hversu litlar upplýsingar þær fengu um málið. Bæði á meðan á málsmeðferð hjá lögreglu stóð og eftir að dómur féll. En tæp fjögur ár liðu frá því málið var kært og þar til dómur féll. Móðirin sem Vísir ræddi við nú í kvöld kærði Birki Má Ingimarsson fyrir hönd dóttur sinnar haustið 2010. Hann var dæmdur í tveggja ára og níu mánaða fangelsi í vikunni fyrir kynferðisbrot gegn þremur börnum. Dómurinn var skilorðsbundinn vegna þeirra tafa sem urðu á málinu hjá lögreglu. Í dómnum segir að rannsókn hafi lokið rúmu ári eftir að Birkir Már var kærður. Hins vegar hafi ríkissaksóknari ekki fengið málið fyrr en sjö mánuðum eftir að rannsókn lauk. Ákæra í málinu var svo gefin út fyrir síðustu jól.Íris Stefánsdóttir, móðir annarrar stúlku sem maðurinn var dæmdur fyrir að níðast á, sagðist í samtali við RÚV ítrekað hafa haft samband við lögreglu og saksóknara til að leita svara vegna tafa á rannsókn málsins. Meðal þess sem Birkir Már var einnig dæmdur fyrir var að gefa 14 ára strák smjörsýru svo drengnum var ekki sjálfrátt, „farið með hann inn í svefnherbergi sitt, klætt hann úr fötum, strokið og nuddað á honum kynfærin, látið hann gera það sama við sig og nuddað kynfærum sínum og líkama upp við líkama hans.“Heyrði aldrei í neinum vegna málsins Dóttir konunnar sem Vísir ræddi voru sem fyrr segir dæmdar 300 þúsund krónur í miskabætur þrátt fyrir að móðirin hafi fyrir hönd dóttur sinnar farið fram á 1,3 milljónir í bætur. Stúlkan var 14 ára þegar Birkir Már hafði samræði við hana. Birkir játaði sök fyrir dómi og játaði jafnframt að vera kunnugt um að stúlkan hefði verið aðeins 14 ára. Móðirin segist aldrei hafa heyrt í neinum vegna málsins frá því að hún kærði það fyrir bráðum fjórum árum síðan. Í síðustu viku hafi dóttir hennar aftur á móti fengið skilaboð í gegnum Facebook frá Birki Má þar sem hann spurði hana hvort hún hafði frétt af dómnum. En það hafði stúlkan ekki gert. Hún hafi svo frétt frá vinkonu sinni að sér hefðu verið dæmdar bætur. Móðirin fletti þá dómnum upp og í kjölfarið fór hún að eigin sögn á fullt við að komast til botns í málinu. Hún hafi ekki verið viss um hvort að barnið A í dóminum væri sitt barn. Hún náði loks í saksóknarann og eftir það heyrði hún fyrst frá réttargæslumanni dóttur sinnar. Sú sagðist hafa reynt að ná í þær en ekki verið með rétt númer. „Við búum á Íslandi, þetta eru engin geimvísindi. Hér er þjóðskrá og hægt að hafa samband við fólk í gegnum Facebook, þetta er engin afsökun,“ segir móðirin.Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar.Vísir/Anton BrinkÓsáttar við skilorðsbundinn dóm Hún kveðst ekki heldur sátt við það að Birkir Már þurfi ekkert að sitja inni. Hún telur að öðruvísi hefði verið tekið á málunum ef um hefði verið að ræða börn sem ekki hefðu vilst af vegi eins og þau börn sem Birkir Már er dæmdur fyrir að brjóta gegn. „Það þarf enginn að segja mér að ef þetta hefði verið ung pía í Breiðagerðisskóla eða Hagaskóla að það hefði ekki verið tekið öðruvísi á málum,“ segir hún. Birkir hafi selt og jafnvel gefið börnunum sem hann misnotaði fíkniefni. „Hann misnotaði skerta sjálfsmynd þeirra,“ segir hún. Móðirin telur að auðveldara væri að sætta sig við þessar lágu bætur ef Birkir Már þyrfti að sitja eitthvað inni. En hann er frjáls ferða sinna og bæturnar sem hann þarf að greiða séu ekki háar. Dóttir hennar þurfi meira að segja að sækja þær til hans sjálf. Hún segir dóttur sína á sama máli. „Henni finnst líka hafa verið brotið á sér með því að hafa ekki verið látin vita af neinu en fréttir svo af dómnum frá honum sjálfum og öðrum utanaðkomandi.“ Mistök hjá lögregluFriðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar, sagði samtali við RÚV að það hefði engin áhrif hafa á rannsóknir mála hverjir brotaþolar eru. Hann vill ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri sagði í fréttum RÚV í gær að mistök lögreglu hafi orðið til þess að málsmeðferðin dróst jafnmikið og raun ber vitni. Hann segir málið algjöra undantekningu enda séu kynferðisbrot gegn börnum í forgangi umfram öll önnur mál.
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Erlent „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Erlent Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Innlent Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Innlent „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Innlent Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Innlent Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Innlent Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Innlent Fleiri fréttir Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Sjá meira
Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Innlent
Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Innlent