Smálaxafæð ekkert einsdæmi á Íslandi Svavar Hávarðsson skrifar 11. júlí 2014 09:25 Stórlax heldur uppi veiðinni víðast hvar. Ár á Norðurlandi vekja vonir fyrir sumarið. Þessi 80 sentimetra lax kom úr Berghyl í Fljótaá á miðvikudag, sem er illveiðanleg vegna vatnselgs eins og víða að undanförnu. Mynd/Orri „
Þetta er alls staðar svona þar sem ég þekki til. Í Skotlandi er enginn smálax kominn enn þá. Það sama á við um Írland og Noreg, og það sama er að gerast í ám á norðurströnd Spánar þar sem vel gekk með stórlax í vor,“ segir Orri Vigfússon, formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna, sem hefur þungar áhyggjur af upphafi laxveiðitímabilsins hér heima, og víða um heim. Orri bætir við að þegar litið er lengra frá Íslandi þá sé það sama uppi á teningnum í Kanada, en ljósið í myrkrinu séu einstaka laxveiðiár á Kólaskaga í Rússlandi. „Alls staðar er stórlaxinn mjög vel haldinn, öfugt við smálaxinn sem stendur ekki út úr hnefa. Hreistursýni af smálöxum úr Norðurá sýna lélegan vöxt á seiðunum sem gengu til sjávar í fyrra. Það bendir til þess að hann hafi lítið haft að éta, eða eitthvað annað sé að. Þroskinn er mjög lélegur,“ segir Orri sem vill ekki tengja laxagengd á neinn hátt við veðurlag vorsins og það sem af er sumars.Ásgeir Heiðar, einn reyndasti leiðsögumaður og laxveiðimaður á Íslandi, dregur upp sömu mynd af veiðisumrinu og Orri. Einnig að eftir næsta stórstraum, sem er eftir helgina, þá hafi myndin skýrst með það hvernig sumrinu muni vinda fram. „Þetta lítur alls ekki vel út. Ef það gerist ekkert á næsta stórstraumi þá vita menn hvers kyns er,“ segir Ásgeir sem rifjar upp veiðisumarið 2007 spurður um sambærilega þróun. „Mér sýnist þetta líka vera miklu verra en sumarið 2012,“ segir Ásgeir, sem nefnir að Blanda sé vissulega á góðri siglingu, en smálaxinn sé seingenginn þar á bæ og veiðin núna segi bara hálfa söguna. Ásgeir Heiðar hefur sérstakar áhyggjur af örlöxum sem hafa veiðst víða. „Það er eitthvað skrítið að menn nái kvótanum í Elliðaánum en hafi ekki í matinn,“ segir Ásgeir sem er þeirrar skoðunar að senda eigi tafarlaust hreistursýni til rannsóknar af örlöxum sem hafa veiðst. Það sem af er sumri hefur Ásgeir Heiðar verið við leiðsögn í Langá, Soginu, Leirvogsá, Elliðaánum og víðar. „Svo er ég að fara í þriggja vikna úthald úti um allt, og er ekkert svakalega bjartsýnn. Ég var uppi í Kjós áðan, þar er æðislegt vatn. Sama á við um Leirvogsána og allar þessar sprænur. En það er bara enginn fiskur. Fiskifræðingarnir virðast ekkert vita, svo hvernig eigum við leikmennirnir að vita nokkuð.“
Mest lesið Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Innlent Segist saklaus Innlent Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Innlent „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Innlent „Allt lýðræðið þurrkað út“ Innlent „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Innlent Óvissustig í Súðavíkurhlíð Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Innlent Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Innlent Fleiri fréttir Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Segist saklaus Djúpstæður ágreiningur og íþróttasalur umbreytist í tónleikahöll Bjargað af þakinu eftir að bíllinn fór í kaf Úthlutaði 91 milljón til félagasamtaka Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Sakar minnihluta um ódýra pólitík í aðdraganda kosninga „Þetta þýðir einfaldlega lengri biðtími“ Rúv er óháð hagsmunum stjórnmála og einkaaðila Þarf að greiða þriggja milljóna málskostnað parsins Stefán Vagn leiðir þingflokk Framsóknarflokksins Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Skólameistarinn fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Refsingar Shamsudin-bræðra og Samúels þyngdar Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Stofna óháðan flokk og segja að Hildur muni víkja þeim úr nefndum og ráðum Fyrsti listi Viðreisnar í Reykjanesbæ kynntur Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Lítið breytt staða á bráðamóttökunni Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Sjá meira