Sjónvörp á kömrunum í Brasilíu Ingvar Haraldsson skrifar 2. júlí 2014 12:45 Hjörtur Methúsalemsson, Egill Gautur Steingrímsson, Hilmar Benedikt Hilmarsson og Einar Þórmundsson. „
Þetta er búið að vera geðveikt, alveg ólýsanlegt“ segir Einar Þórmundsson, sem er nú staddur í Ríó De Janeiro í Brasilíu þar sem hann fylgist með heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu ásamt þremur vinum sínum. „Það eru allir að horfa á HM, fólk er með túbusjónvarp úti á götu til að fylgjast með mótinu. Þeir sem selja inn á kamrana eru með pínulítið sjónvarp til að geta fylgst með. Leigubílstjórar eru líka með sjónvarp í bílnum svo þeir geti horft á leikina á meðan þeir keyra“ segir Einar heillaður af mannlífinu.Strákarnir fylgdust með viðureign Belgíu og Rússlands.Sáu fimm slagsmál í stúkunni „Þegar Brasilíumenn spila er öllu lokað og haldið partý. Við horfðum á leik Chile og Brasilíu á hostelinu með fullt af Brössum.“ Það leit ekki vel út lengi vel fyrir Brasilíumenn, leikurinn fór í framlengingu og að lokum vítaspyrnukeppni. Einar segir heimamenn hafa farið á taugum. „Þegar Brasilíumenn komust svo áfram trylltist allt, það hlupu allir út á götu til að fagna. Við þurftum sjálfir að hlaupa í gegnum mannfögnuðinn til að ná lest til að komast á leik Úrúgvæ og Kólumbíu.“ Leikurinn fór fram á hinum sögufræga Maracana-leikvangi. „Þetta var besti leikurinn sem við fórum á. Við sáum fimm sinnum slagsmál í stúkunni nálægt okkur á meðan leiknum stóð. Það var þvílíkur hiti í mönnum.“Einar Þórmundsson við húsbílinn sem strákarnir leigðu.Algjör steinsteypufrumskógur Ferðalag strákanna hófst á þrettán daga ferðalagi á húsbíl um Bandaríkin. „Við fórum til Los Angeles, Las Vegas og San Francisco, sáum meðal annars UFC bardaga í Las Vegas.“ Þaðan var ferðinni heitið til Sao Paulo í Brasilíu sem Einar segir vera furðulega borg. „Við vorum í þrjá daga í Sao Paulo. Þetta er algjör steinsteypufrumskógur.“ Einari líst mun betur á Rio De Janeiro. „Borgin er hrikalega falleg og það er einfalt að læra á lestarkerfið og svoleiðis. Okkur hefur ekki fundist við vera í neinni hættu hérna. Það var búið að vara okkur við að við gætum lent í vandræðum en það hefur ekki verið. Það eru reyndar lögreglumenn út um allt út hérna út af HM.“Hinir fjóru fræknu við Miklagljúfur (e. Grand Canyon)
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Sjá meira