Áframhaldandi töf gæti haft skelfileg áhrif Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 2. júlí 2014 20:00
Gjaldeyrishöft voru sett á 27. nóvember 2008 en þau áttu að vera tímabundin aðgerð. Nú, fimm og hálfu ári síðar, liggur ekki enn fyrir nákvæm áætlun um það hvernig á að afnema þau en fjármálaráðherra hefur sagt að hann vonist til að stór skref verði stigin í afnámi hafta á þessu ári. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá því í síðasta mánuði að fyrirhugað væri að ráða erlend ráðgjafafyrirtæki til að koma að vinnu við afnám gjaldeyrishafta. Þær viðræður eru nú langt komnar og er áætlað að ganga frá samningum við þessi fyrirtæki um miðjan júlímánuð. Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, segir tækifæri við afnám gjaldeyrishafta vera til staðar og þau þurfi stjórnvöld að grípa. En hvaða áhrif hefði áframhaldandi biðstaða? „Það gæti haft skelfileg áhrif að okkar mati. Við erum á þeim tímapunkti núna að það er tímabært að taka skref við afnám hafta. Samsetning hagvaxtar er að breytast, hann verður áfram drifinn af innlendri neyslu og við óttumst það að áður en langt um líður, verðum við komin í ofhitnun innan hafta. Að okkar mati er líka áhætta að taka engin skref og tækifæri til að stíga einhver skref eru einmitt núna” segir Ásdís. Viðskiptaráð Íslands birti nýverið skýrslu um afnám gjaldeyrishafta en þar kemur fram að kröfuhafar föllnu bankanna verði af um 260 milljörðum króna fyrir hvert ár af töfum á útgreiðslu eigna þrotabúanna. Ásdís segir kröfuhafa ekki eina um tapið. „Þannig að það eru ekki eingöngu kröfuhafar sem verða fyrir kostnaði, heldur auðvitað einnig íslensk efnahagslíf og ég tel að það sé mjög mikilvægt núna að við brjótumst út úr þessum vítahring sem við erum í innan hafta,” segir Ásdís.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Katla skelfur Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira