Fleiri kvartanir til umboðsmanns Alþingis Stefán Árni Pálsson skrifar 3. júlí 2014 15:53 Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis. MYND/GVA
Hinn 30. júní sl. höfðu umboðsmanni Alþingis alls borist 240 kvartanir á árinu og er það 10% fjölgun frá fyrra ári en þetta kemur fram í frétt á vef Umboðsmanns Alþingis. Á sama tíma var búið að afgreiða 272 mál eða 56% fleiri mál heldur en afgreidd voru á sama tíma árið 2013. Fram kemur í fréttinni að fleiri mál voru að jafnaði afgreidd mánaðarlega síðari hluta árs 2013 og meðaltal afgreiddra mála á mánuði er nú það sama og allt árið 2013 eða 45. Skráð mál á árinu 2013 voru 494 og afgreidd mál 543 en hliðstæðar tölur fyrir árið 2012 voru 536 og 502.Embætti Umboðsmanns Alþingis hefur allt frá árinu 2011 þurft að takast á við mikla fjölgun nýrra kvartana en það ár fjölgaði málunum um 40% frá árinu 2010. Um 500 kvartanir hafa borist umboðsmanni árlega frá þeim tíma en á sama tíma hafa ekki orðið breytingar á fjölda starfsmanna.„Umboðsmaður Alþingis hefur gert Alþingi grein fyrir því að úr þessum vanda í starfsemi umboðsmanns verði ekki bætt að óbreyttum fjölda kvartana nema sérstök fjárveiting fáist til að sinna þessum þætti. Hefur umboðsmaður sérstaklega vakið athygli á nauðsyn þess að embættinu verði gert kleift að sinna betur eftirliti með starfsemi þeirra stofnana þar sem frelsissviptir einstaklingar dvelja eða aðrir sem geta síður fært fram kvartanir og athugasemdir um aðbúnað og réttindi,“ segir í frétt á vef embættisins.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira