Handtekinn grunaður um njósnir fyrir bandarísk yfirvöld Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. júlí 2014 13:00 Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA.
Starfsmaður þýsku leyniþjónustunnar sem var handtekinn fyrir helgi grunaður um njósnir fyrir bandarísk yfirvöld er talinn hafa njósnað um yfirstandandi úttekt þýska þjóðþingsins á eftirliti Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna á þýskum borgurum. Handtaka mannsins er talið mesta áfall sem samskipti Bandaríkjamanna og Þjóðverja hafa orðið fyrir síðan upplýst var í október í fyrra að bandaríska þjóðaröryggisstofnunin NSA hleraði farsíma Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í meira en áratug eða frá árinu 2002, áður en hún varð kanslari. Í vefútgáfu Spiegel var greint frá því að maðurinn, sem er 31 árs gamall, hafi unnið í póstdeild þýsku leyniþjónustunnar. Bild greindi frá því að maðurinn hefði stolið skjölum á tveggja ára tímabili og selt þau. Sérstök þingnefnd Bundestag, þýska þjóðþingsins, vinnur nú úttekt á umfangi rafræns eftirlits Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, NSA, með þýskum borgurum. Nefndin gerði hlé á störfum sínum til að fjalla um handtöku mannsins. Patrick Sensburg formaður nefndarinnar sagði í samtali við Financial Times að nefndarmenn væru afar varkárir og notuðu síma sem dulkóðar símtöl og hefðu læsta öryggisskápa á skrifstofum sínum til að geyma trúnaðarskjöl. Talsmaður Angelu Merkel lét hafa eftir sér að mál mannsins og ásakanir á hendur honum væru litin mjög alvarlegum augum en vildi ekki svara því hvort málið hefði verið sérstaklega rætt í símtali Merkel og Barack Obama forseta Bandaríkjanna á fimmtudag. Þingmaðurinn Christian Flisek sem situr í nefndinni sem rannsakar hleranir NSA sagði að ef grunsemdir reyndust réttar og að umræddur starfsmaður þýsku leyniþjónustunnar hafi stundað njósnir fyrir Bandaríkjamenn þá myndi það grafa alvarlega undan trausti á milli bandarískra og þýskra stjórnvalda sem þingmenn hafi eytt mörgum mánuðum í að endurheimta. Þá væri slíkt ekkert annað en árás á þýska stjórnskipun, að því er fram kemur í Financial Times.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira