Segir aðferðir Vegagerðarinnar skapa mikla slysahættu 9. júlí 2014 13:07 Runólfur Ólafsson. Vísir/Haraldur
Lögreglan rekur bílveltu fyrir norðan til þeirrar aðferðar Vegagerðarinnar að strá lausamöl yfir olíu sem umferðinni er þá ætlað að þjappa. Félag íslenskra bifreiðaeigenda gagnrýnir þessar aðferðir sem og lélegar vegmerkingar. Ung kona missti stjórn á bíl sínum, þegar hún ók um Ljósavatnsskarð í morgun, með þeim afleiðingum að bíllinn valt heila veltu út fyrir veginn. Vegagerðin var nýbúin að dreyfa þar fíngerðu malarefni á veginn, sem ætlað er að troðist ofan í malbikið undan umferð bíla, en það er mjög laust í sér fyrst eftir að því hefur verið dreift á vegina. Konan slasaðist ekki alvarlega en var þó flutt á sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. Að sögn lögreglunnar á Akureyri verða nokkur svona slys eða óhöpp á hverju ári, sem rekja má til þess að ökumenn missa stjórn á bílum sínum í lausu ofanálagi Vegagerðarinnar. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB gagnrýnir þetta verklag. „Já, við gagnrýnum það. Það stafar af þessu mikil slysahætta. Þarna höfum við því miður dæmi um að ökumaður missi stjórn af ökutæki við þessar aðstæður. Þess utan verða fjölmargir bifreiðaeigendur fyrir miklu munatjóni því það skjótast steinar í allar áttir. Fyrir utan tjónið skapast mikil hætta,“ segir Runólfur um grjótkastið. Aðferðirnar samræmist ekki því sem þekkist á 21. öldinni. Runólfur telur lítinn sparnað þessu samfara, eitt slys kostar miklu meira en sparnaður sem slík vegalögn hefur í för með sér. Erlendir ferðamenn þekki ekki vegi sem þessa. „Eitt slys kostar margfalt á við þann sparnað sem menn hafa við svona vegalögn,“ segir Runólfur. „Með auknum túrisma eru þarna líka á ferðinni aðilar, eins og erlendir ferðamenn, sem hafa aldrei ekið við þessar aðstæður.“ FÍB hefur fengið mál til meðferðar vegna þessa. „Já, við höufm fengið það. Í hverju tilfelli hefur veghaldarinn, í þessu tilfelli Vegagerðin, skyldur varðandi merkingar. Því miður hafa oft verið veruleg vanhöld á merkingum.“
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira