Alþjóðlegur dagur flóttabarnsins er í dag Randver Kári Randversson skrifar 20. júní 2014 12:22 Frá Suður-Súdan Vísir/AFP
Alþjóðlegur dagur flóttabarnsins er í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá UNICEF á Íslandi. Um þessar mundir beinir UNICEF á Íslandi sjónum sínum að stöðu barna í yngsta ríki heims, Suður-Súdan. Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Suður-Súdan hefur gengið vel og landsmenn fylkja sér á bak við þá hugsjón að öll börn eigi sama rétt til lífs og þroska, hvar svo sem í heiminum þau kunna að búa. Í tilkynningunni kemur fram að meira en hálf milljón barna hafa lagt á flótta eftir að blóðug átök brutust út í Suður-Súdan í lok síðasta árs. Mörg þessara barna hafi misst eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar og eru því ein á ferð. UNICEF hefur komið á fót miðstöðvum þar sem börn sem eru án fylgdar fullorðinna eru skráð, að þeim hlúð og þau sameinuð fjölskyldum sínum þar sem því verður við komið. „Af ástæðum sem þau eiga enga sök á, hafa börn í Suður-Súdan nú þegar upplifað meiri hörmungar en nokkurt mannsbarn ætti að ganga í gegnum,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Börnin í landinu berjast nú einnig við sjúkdóma og fæðuóöryggi sem mun leiða til gríðarlegrar hungursneyðar á næstu misserum ef ekkert verður að gert. „Við verðum að koma þessum börnum til hjálpar tafarlaust. Þau eru algjörlega berskjölduð og nú skiptir hver einasta mínúta máli.“ Stefán Ingi heldur til Suður-Súdan á morgun þar sem hann mun leggja hjálparstarfinu lið á vettvangi í sumar.Miðasala á styrktartónleika hefst í dag Miðasala á styrktartónleika fyrir neyðarhjálp UNICEF í Suður-Súdan hefst í dag. Tónleikarnir fara fram í Silfurbergi í Hörpu, fimmtudaginn 3. júlí. Fram koma hljómsveitirnar Hjaltalín og Kaleó ásamt Páli Óskari og Snorra Helgasyni. Miðaverð er 4.500 krónur og rennur óskipt til neyðarsöfnunarinnar.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira