Framsókn haldið utan nefnda á Ísafirði Bjarki Ármannsson skrifar 20. júní 2014 19:29 Marzellíus Sveinbjörnsson, fulltrúi Framsóknar í bæjarstjórn, fær ekki sæti í nefnd. Vísir/Pjetur
Framsóknarflokkurinn í Ísafjarðarbæ fékk engan fulltrúa kjörinn í nefndir bæjarins á fundi nýrrar bæjarstjórnar í gær. Björt framtíð fékk hins vegar nokkra menn kjörna í nefndir, sem vekur athygli fyrir þær sakir að Framsókn náði manni inn í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum en Björt framtíð ekki. „Í-listinn hunsar þar með fulltrúa Framsóknarflokksins sem hefur að baki sér rúmlega einn sjötta þeirra atkvæða sem þeir níu fulltrúar sem bæjarstjórnina sitja hafa alls,“ er haft eftir Marzellíusi Sveinbjörnssyni, bæjarfulltrúa Framsóknar, í bókun fundarins. „Þetta er vissulega ekki í anda þess íbúalýðræðis sem Í-listinn boðaði í stefnuskrá sinni fyrir nýliðnar sveitarstjórnarkosningar.“ Benedikt Bjarnason, oddviti Bjartrar framtíðar, var meðal annars kosinn formaður í íþrótta- og æskulýðsnefnd. Í samtali við BB.is, sem fyrst greindi frá málinu, segir Arna Lára Jónsdóttir, oddviti Í-listans, að meirihluti í bæjarstjórn vilji að sjónarmið Bjartrar framtíðar komi fram í ljósi þess að flokkurinn hafi verið „mjög nálægt“ því að koma manni að í kosningunum. „Framsóknarflokkurinn er með mann í bæjarstjórn og áheyrnarfulltrúa í bæjarráði þannig að sjónarmið flokksins munu koma fram,“ segir Arna Lára jafnframt. Þessi útilokun Framsóknarflokksins vekur meðal annars athygli í ljósi þess að í Reykjavík ákvað nýr meirihluti að bjóða ekki Framsóknarflokknum, sem fékk tvo menn kjörna, til samstarfs í nefndum og ráðum með sama hætti og Sjálfstæðisflokknum, sem einnig er í minnihluta. Framsókn á fulltrúa í sjö nefndum í borginni en engan til að mynda í stjórn Orkuveitunnar, Hafnarstjórn og heilbrigðisnefnd.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira