Límmiði á bíl í Eyjum: Lækkum skatta skjóttu listamann Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 22. júní 2014 22:33 „
Mig grunar að þetta tengist kosningunum en ég veit það ekki,“ segir Sigga Jónsdóttir, leikskáld, en hún tók mynd í dag af límmiða á afturrúðu í bíl í Vestmannaeyjum og setti á Instagram. Á límmiðanum stendur: Lækkum skatta skjóttu listamann. „Ég sá þetta á bíl á bryggjunni.“ „Mér datt ekki í hug að þetta væri eitthvað sem fólk væri að hugsa í raun og veru. Þetta er væntanlega eitthvað grín sem fór of langt,“ segir Sigga. „Ég held þetta sé ekki illa meint. Ég tek þessu ekkert persónulega.“ Sigga er listamaður sjálf, hefur samið útvarpsleikrit og les yfir þau fyrir RÚV. „Þess vegna hjó ég eftir þessu,“ útskýrir hún. „Ég held þetta tengist umræðunni um listamannalaun. Hún er svolítið á villigötum. Forgangsröðunin hjá fólki er misjöfn og kannski er forgangsröðunin úti í Eyjum önnur. En mér finnst þetta svolítið langt gengið.“ Sigga vekur athygli á því að það hafi verið fyrirhöfn að koma miðanum fyrir. „Þeim þótti þetta greinilega það mikilvægt að hafa búið til límmiða og sett hann í gluggann. Það er eitt að hugsa þetta en annað að gera þetta.“ Það kom henni á óvart að fólk væri tilbúið til að flagga þessum skoðunum á þennan hátt. Sigga á erfitt með að trúa að þetta séu raunverulegar skoðanir þessa fólks. „Þetta greinilega hefur verið eitthvað grín,“ segir hún vongóð.
Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Erlent Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Erlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Innlent Fleiri fréttir Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Sjá meira