Mesti fjöldi barna í Kvennaathvarfinu síðan 1998 Randver Kári Randversson skrifar 25. júní 2014 11:03 Vísir/Getty
Alls dvöldu 222 konur og börn í Kvennaathvarfinu árið 2013, en um miðjan nóvember var athvarfið búið að hýsa fleiri en allt árið þar á undan. Þetta kemur fram í ársskýrslu Kvennaathvarfsins sem birt var í dag. Á síðasta ári dvöldu 125 konur og 97 börn í Kvennaathvarfinu í allt frá einum degi og upp í 183 daga . Meðaldvöl kvenna varði í 17 daga en það er 3 dögum styttri meðaldvöl en árið á undan. Að jafnaði dvelja konur með börn lengur en barnlausar konur og konur af erlendum uppruna lengur en íslenskar konur. Börn dvöldu í athvarfinu í að meðaltali 21 dag. Að meðaltali dvöldu 6 konur og 5 börn í athvarfinu á degi hverjum en fjöldi dreifðist mjög misjafnlega yfir ári. Í fyrra komu 97 börn til dvalar með mæðrum sínum í Kvennaathvarfinu, 49 strákar og 48 stelpur. Þetta er mesti fjöldi barna sem dvalið hefur í Kvennaathvarfinu síðan árið 1998. 37 af börnunum komu með íslenskri móður en 60 með móður af erlendum uppruna. Yngsta barnið var nokkurra vikna gamalt en það elsta 16 ára. Í skýrslunni kemur fram að reynt er að auðvelda börnum komu og dvöl í Kvennaathvarfi enda eru þau ekki síður í kreppu en mæðurnar. Þau upplifi oft tilfinningar eins og ótta, varnarleysi, einangrun, sjálfsásökun, skömm og ótímabæra ábyrgð. Stefnt sé að því að barnið eigi góðar stundir í athvarfinu og leggja þar margir hönd á plóginn. Árið 2013 voru skráðar 125 komur í dvöl í Kvennaathvarfinu og 583 í viðtöl, alls 708 komur. Komum fækkaði um rúmlega 40 frá árinu á undan
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira