Úttektin staðfesti að ráðuneytið hafi farið að lögum Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. júní 2014 18:42 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. VISIR/GVA „
Forsætisráðuneytið fagnar úttekt þeirri sem Ríkisendurskoðun birtir í dag um úthlutanir ráðuneytisins á þremur safnliðum vegna fjárlagaáranna 2012-14. Úttektin staðfestir að forsætisráðuneytið fór að lögum við úthlutun styrkja bæði í tíð fyrri ríkisstjórnar, þegar ráðherranefnd um atvinnumál var starfandi, og þegar eftirstöðvum þeirrar fjárheimildar sem ráðherranefndin hafði áður haft aðkomu að var úthlutað í desember 2013.“ Þetta segir í tilkynningu sem ráðuneytið sendi frá sér í dag í kjölfar gagnrýni Ríkisendurskoðunar á úthlutun styrkja til atvinnuskapandi minjaverndarverkefna undir lok síðasta árs. Þá taldi Ríkisendurskoðun að ráðuneytið hefði átt að leita nýrrar heimildar Alþingis til að ráðstafa ónýttum fjárheimildum ráðuneytisins eftir að ráðherranefnd um atvinnumál hafði verið lögð niður. „Sú skoðun, sem ráðuneytið hefur alfarið lýst sig ósammála, breytir ekki þeirri staðreynd að um gildar fjárheimildir var að ræða sem rétt og eðlilegt þótti að nýta,“ segir í tilkynningunni og bætt er við að ráðuneytið taki athugasemdir og ábendingar Ríkisendurskoðunar til athugunar. „En áréttar fyrri skýringar sem réttlæta að fullu þá málsmeðferð sem viðhöfð var við veitingu styrkja.“ Ríkisendurskoðun hvatti ráðuneytið til að setja sér skýrar verklagsreglur um styrkveitingar. Þá sé mikilvægt að ráðuneytið setji beiðnir sínar til Alþingis um fjárveitingar (fjárlagabeiðnir) ávallt fram á skýran og lýsandi hátt. Enn fremur sé mikilvægt að skýra hvar ábyrgð á verkefnum „græna hagkerfisins“ liggi en það er óljóst að mati Ríkisendurskoðunar. Þetta kom fram á vef Ríkisendurskoðunar. Forsætisráðuneytið svarar þessum þremur ábendingum í tilkynningunni sinni en undirstrikar að Ríkisendurskoðun telji að forsætisráðuneytið hafi beint umsjón með styrkveitingum í faglegt ferli með því að fela Minjastofnun Íslands að annast samningagerð vegna styrkjanna, greiðslu þeirra og eftirfylgni með þeim verkefnum sem hlutu styrk. Tilkynninguna í heild sinni má nálgast hér.
Tengdar fréttir Ríkisendurskoðun gagnrýnir styrkveitingar forsætisráðherra Hvetur ráðuneytið til að setja sér skýrar verklagsreglur um styrkveitingar. 25. júní 2014 11:57 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira
Ríkisendurskoðun gagnrýnir styrkveitingar forsætisráðherra Hvetur ráðuneytið til að setja sér skýrar verklagsreglur um styrkveitingar. 25. júní 2014 11:57