Franski ferðamaðurinn fannst á hóteli: "Þetta er frekar dapurt“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 26. júní 2014 11:45 Björgunarfélag Hornafjarðar leitaði að manninum í nótt. Friðrik, t.h., formaður félagsins, var ekki alveg sáttur við manninn.
Franskur ferðamaður sem leitað var að í gærkvöldi fannst á hóteli á Egilstöðum í morgun. En ekkert hafði spurst til hans síðan 17. júní. Friðrik Jónas Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, segir ótrúlega mikið af ferðamönnum ferðast út um allt og enginn viti af því. „Hann talaði um það við fólkið á tjaldstæðinu að hann ætlaði í nokkra daga göngu í Kollamúla, svo kemur upp úr krafsinu að hann hefur aldrei farið þangað,“ útskýrir Friðrik. „Þegar þetta fréttist í fjölmiðlum fórum við að fá vísbendingar um hann. Hann hafði verið inn við Snæfell á sunnudag.“ En að sögn Friðriks hafði verið brýnt fyrir manninum að halda ekki inn til Snæfells þar sem þar væri allt á kafi í snjó og hættulegt að ferðast. „En hann fór samt sem áður. Þrátt fyrir að það væri búið að telja honum trú um að gera þetta ekki.“ „Þetta er frekar dapurt,“ segir Friðrik en maðurinn var alveg einn. Friðrik segir málið ekkert endilega snúast um að ferðmann fái ekki næga fræðslu heldur sé þetta beggja blands. „Einhverjir fá fræðslu og fara eftir henni, aðrir fá ekki fræðslu. Sumir fá fræðslu en fara ekkert eftir henni. Þeir eru verstir.“ Björgunarfélagið hélt inn í Kollumúla í nótt og leitaði að manninum til um eitt í morgun. Friðrik vildi ekki meina að leitin hefði verið tímasóun en að hún ýti undir það að menn láti vita hvert þeir eru að fara. Ferðamaðurinn kemur til Hornafjarðar í dag en allt hans dót er þar og hefur verið síðastliðna 9 daga.
Tengdar fréttir Leita að frönskum ferðamanni á Lónsöræfum Ekkert hefur spurst til mannsins síðan 17. júní. 25. júní 2014 20:36 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira
Leita að frönskum ferðamanni á Lónsöræfum Ekkert hefur spurst til mannsins síðan 17. júní. 25. júní 2014 20:36