Umsóknir hælisleitenda á Íslandi afgreiddar á 90 dögum Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 11. júní 2014 12:06 visir/gva
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, og Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, undirrituðu á hádegi samning um þjónustu við hælisleitendur. Markmiðið með honum er að hraða málsmeðferð vegna hælisumsókna, bæta verklag og tryggja sem besta nýtingu fjármangs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Innanríkisráðuneytinu. Téðum samningi er ætlað að tryggja raunverulegar breytingar á verklagi í innflytjendamálum, tryggja hlutlausa og óháða réttargæslu fyrir alla hælisleitendur þannig að jafnræðis sé gætt. Áhersla er lögð á að stytta málsmeðferð en afgreiðsla umsókna hælisleitenda hefur tekið allt upp í tvö til þrjú ár á umliðnum árum. Stefnt er að því að þessi tími verði ekki lengri en 90 dagar að meðaltali frá og með 25. ágúst 2014. Að sögn Hönnu Birnu hefur lengi verið unnið að þessum breytingum og að með samningnum verði Rauði krossinn helsti samstarfsaðili ráðuneytisins á þessu sviði. „Aðkoma Rauða krossins að þessum verkefnum hefur mikla þýðingu, ekki aðeins vegna þeirrar þekkingar og reynslu sem samtökin hafa af málefnum tengdum innflytjendum, heldur einnig vegna þeirrar gilda og fagmennsku sem einkenna störf samtakanna,“ sagði hún. „Hér er um að ræða mikil tímamót í þessum málaflokki og við getum í framhaldinu tryggt hælisleitendum betri og skilvirkari þjónustu samhliða betri nýtingu fjármagns.“ Rauði krossinn mun reglulega meta aðbúnað hælisleitenda, sinna heimsóknarþjónustu og félagsstarfi samkvæmt samningnum. Einnig mun hreyfingin sjá tímabundið um að gæta hagsmuna hælisleitenda við umsókn þeirra um hæli. Í því starfi felst meðal annars að sjá um leiðbeiningar og upplýsingagjöf í móttökumiðstöð, viðvera í viðtali og þátttaka í að greina sérstaklega viðkvæma hælisleitendur.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Fleiri fréttir Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Sjá meira