40 manna áhöfn Brimness RE endurráðin Svavar Hávarðsson skrifar 13. júní 2014 07:00 Stærsti og nýjasti frystitogari landsmanna mun halda áfram veiðum á Íslandsmiðum, með sinni fyrri áhöfn Fréttablaðið/Anton
Fjörutíu manna áhöfn frystitogarans Brimness RE 27, sem er flaggskip útgerðarfyrirtækisins Brims hf., hefur verið endurráðin. Skipið mun halda áfram veiðum á Íslandsmiðum með sama hætti og var, og hætt hefur verið við að leita verkefna fyrir skipið erlendis. Þetta staðfestir Guðmundur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Brims, í viðtali við Fréttablaðið. Guðmundur hefur útskýrt fækkun frystiskipa hérlendis með því að veiðigjaldið, eins og það var fyrir breytingu við þinglok í vor, hafi lagst mjög þungt á frystiskipaútgerðina. Aðferðir við að leggja á veiðigjaldið hafi verið kolrangar. „Veiðigjöldin voru löguð til, þó þau séu ennþá röng,“ segir Guðmundur spurður um á hverju þessi ákvörðun hans byggist. „Ég er þá ekki að segja að ég sé á móti veiðigjöldum, eða að veiðigjöld séu endilega of há, heldur að þau eru röng. Það hefur verið blekkingarleikur í gangi, því gjöldin lögðust á fisktegundir og ekki miðað við afkomu veiða á viðkomandi tegund,“ segir Guðmundur og nefnir dæmi um að veiðigjald af karfa var 25% hærra en af þorski, sem er helmingi verðmeiri tegund. Brimnesið RE skilaði 2,7 milljarða króna aflaverðmæti í fyrra. Laun og launatengd gjöld losuðu milljarð.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira