Alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt efnahagslíf Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 12. júní 2014 20:00
Héraðsdómur Reykjavíkur fór þess á leit við EFTA-dómstólinn í desember síðastliðnum, að hann veitti ráðgefandi álit um lögmæti verðtryggingarinnar. Munnlegur málflutningur í málinu, sem höfðað var gegn Landsbankanum, fór fram fyrir EFTA-dómstólnum í Lúxemborg í gær. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tekur undir málatilbúnað Íslendings sem sækir málið gegn Landsbankanum en hann var með verðtryggt neyslulán hjá bankanum. Ríkisstjórn Íslands er á meðal þeirra sem skiluðu greinargerð í málinu en hún tekur undir málatilbúnað Landsbankans í málinu enda bankinn í ríkiseigu. Í skýrslu framsögumanns EFTA-dómstólsins kemur fram að afstaða ríkisstjórnar Íslands til þess, hvort verðtrygging neytendalána stangist á við tilskipanir ESB, sé eftirfarandi:„Varðandi annað skilyrðið og með vísan til dómaframkvæmdar telur ríkisstjórn Íslands að hætt væri við umtalsverðum og alvarlegum efnahagslegum afleiðingum ef það reynist ekki samrýmast tilskipun 87/102/EBE að lántakar fái upplýsingar um ÁHK og heildarlántökukostnað á raunvirði.“„Ríkisstjórn Íslands vill sérstaklega lýsa áhyggjum sínum yfir afturvirkum endurgreiðslum og endurreikningi sem gætu haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar fyrir fjármálamarkaði og –stofnanir Íslands.“ Sem sagt, verði niðurstaða dómstóla á þá leið að verðtrygging neyslulána gangi í berhögg við tilskipun Evrópusambandsins, þá mun það, að mati ríkisstjórnar Íslands, hafa alvarleg efnahagsleg áhrif hér á landi. Sem fyrr segir fór munnlegur málflutningur í málinu fram í gær, en reiknað er með niðurstöðu í ágúst.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira