Innlent

Velunnari gaf SÁÁ 50 milljónir króna

Jón Júlíus Karlsson skrifar
SÁÁ fékk 50 milljónir króna að gjöf frá fjársterkum einstaklingi til að byggja nýja álmu á sjúkrahúsinu Vogi. Yfirlæknir segir að vímuefnavandi Íslendinga sé vaxandi á ný í fyrsta sinn frá hruni.

SÁÁ tók nýverið í notkun nýja álmu á sjúkrahúsinu Vogi. Nýja álman er ætluð veikustu sjúklingunum sem þurfa meiri umönnun en aðrir sjúklingar.

Ekki var gert ráð fyrir að veita slíka þjónustu þegar elsti hluti sjúkrahússins var tekinn í notkun fyrir rúmum 30 árum. Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að nýja álman breyti miklu fyrir sjúkrahúsið.

„Þetta gjörbreytir aðstöðu hjúkrunarfólksins, það er að segja sjúkraliðana, hjúkrunarfræðingana og þess fólks sem er að annast sjúklingana. Aðstaðan fyrir þetta fólk hefur verið alveg óviðunandi,“ segir Þórarinn

Kostnaður við nýbygginguna er um 150 milljónir króna. Byggingin var að öllu leyti fjármögnuð með framlögum velunnara SÁÁ.

„Við fengum góða gjöf fyrir þessum spítala frá einstaklingi sem vill ekki láta nafns síns getið - 50 milljónir. Við söfnuðum öðru eins með framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum og erum enn að safna. Fullt af fólki sem hefur losnað út úr vandanum og er þakklátt og vill láta gott af sér leiða. Það hugsar oft með hlýjum huga til SÁÁ.“

Þórarinn segir að um 25 þúsund Íslendingar hafi leitað aðstoðar á Vogi á undanförnum 30 árum. Hann telur áfengis- og vímuefnavanda Íslendinga vera að aukast á ný. Hann er ósáttur við dræmt fjárframlag frá ríki og Reykjavíkurborg.

„Það má marka það í fyrsta skipti eftir hrun að vandinn er aftur að byrja að vaxa og það er mjög tilfinnanlegt að við þurftum að draga úr starfseminni og þess gætir alls staðar úti í þjóðfélaginu. Það er meiri óróleiki og vandi út af vímuefnaneyslu og það er vegna þess að Vogur hefur ekki verið í fullum afköstum það sem af er ári,“ segir Þórarinn Tyrfingisson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×