Hátíðarhöld á Austurvelli Birta Björnsdóttir skrifar 17. júní 2014 12:49 Forsætisráðherra gerði búsetuskilyrði á landsvísu meðal annars að umfjöllunarefni í ræðu sinni. Vísir/Daníel
Hátíðardagskrá fór fram á Austurvelli venju samkvæmt fyrr í dag. Mikill fjöldi var samankominn i blíðviðrinu í miðbænum og fjöldi erlendra ferðamanna fylgdist með því sem fram fór. Að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni lagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra minntist svo tímamótanna í hátíðarræðu. Hann sagði sögu undanfarinna sjö áratuga vera sögu mikilla framfara og að jafnvel sé um að ræða mestu framfarasögu sem nokkur þjóð hafi upplifað á svo skömmum tíma. Hann sagði það þó umhugsunarefni að ekki hafi tekist að skapa jöfn búsetuskilyrði um land allt og nefndi sem dæmi að nú búi færri á Vestfjörðum en á nítjándu öld. Hann sagði mikilvægt að taka framfaratrú landsmanna árið 1944 okkur til fyrirmyndar á komandi árum. Valgerður Guðnadóttir klæddist að þessu sinni skrúða fjallkonunnar og las ljóðið Mynd til Láru eftir Valgeir Guðjónsson. Skrúðganga lagði síðan af stað frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem Sóley Tómasdóttir, nýr forseti borgarstjórnar, lagði blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur. Hér fyrir neðan fylgja nokkrar myndir af hátíðahöldunum.Valgerður Guðnadóttir var Fjallkonan að þessu sinni.Vísir/DaníelHátíðarhöldin á Austurvelli.Vísir/DaníelLúðrasveit Reykjavíkur leiðir skrúðgönguna að kirkjugarðinum.Vísir/Daníel
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira