Jón Steinar efast um hæfi nýskipaðs hæstaréttardómara Jakob Bjarnar skrifar 19. júní 2014 09:06 Jón Steinar telur fyrirliggjandi að Benedikt Bogason verði að svara ákveðnum spurningum áður en hann njóti trausts sem hæstaréttardómari.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, telur vafa leika á um hvort nýskipaður hæstaréttardómari, Benedikt Bogason, sé heill og sýni „fylgispekt við landslög,“ eins og Jón Steinar orðar það í grein sem hann skrifaði og birtist í Morgunblaðinu í morgun. Jón Steinar telur reyndar sjálfur ofmælt, í samtali við fréttastofu, að hann efist um hæfi Benedikts, en í það minnsta telur Jón Steinar vert að Benedikt svari spurningum svo borgarar geti treyst honum. Og ómögulegt annað en draga þá ályktun að vafi leiki þar á um meðan þeim spurningum er ósvarað. Jón Steinar krefur dómarann svara. Málið varðar hlerunarúrskurð sem sérstakur saksóknari fékk í maí 2010 frá héraðsdómara; að hann hafi verið falsaður. Úrskurðurinn var veittur til að heimila hlerun á símum Hreiðars Más Sigurðssonar fyrrverandi forstjóra Kaupþings. Hreiðar Már kærði Ólaf Þór Hauksson sérstakan saksóknara og Benedikt Bogason þáverandi héraðsdómara en nú hæstaréttardómara til Ríkissaksóknara fyrir brot í opinberu starfi með vísan í þennan meinta falsaða úrskurð. Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu 16. júní. Jón Steinar vitnar í fréttir Vísis af málinu og þess að Benedikt vilji ekki tjá sig efnislega um þessar ásakanir við fréttastofu nema vísa ásökununum alfarið á bug. Þetta telur Jón Steinar engan veginn duga til. „Það er misskilningur ef menn halda að þetta mál snúist aðeins um hugsanlegar refsiverðar sakir og ekki þurfi að sinna því frekar ef þær eru fyrndar,“ segir Jón Steinar sem vonar að Benedikt hafi ekki gerst sekur um misnotkun dómsvalds, líkt og Heiðar heldur fram. Til að Benedikt geti reynst traustsins verður í Hæstarétti verði hann að svara eftirfarandi spurningum: „1. Hafði hann fengið skriflega beiðni frá sérstökum saksóknara um símahlustun, áður en hann kvað upp úrskurðinn. 2. Hvaða önnur gögn lágu fyrir honum á því augnabliki? 3. Var málið tekið fyrir á þingstað Héraðsdóms Reykjavíkur við Lækjartorg í Reykjavík? 4. Er það rétt sem segir í frétt blaðsins, að lögreglumenn hafi sótt úrskurðinn á heimili dómarans í Reykjavík og þá hafi engar forsendur fylgt niðurstöðunni? 5. Mætti sérstakur saksóknari á dómþing í málinu? 6. Óskaði hann eftir því við lögreglumennina sem sóttu úrskurðinn til hans að skrifleg beiðni um símahlustunina yrði fengin honum síðar?“ Jón Steinar klykkir út með því að vona að Benedikt sýni með svörum sínum að hann verðskuldi það traust sem hann þarfnast við störf sín sem dómari við Hæstarétt Íslands.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira