Frambjóðandi vaknaði upp við sprengingar í garðinum sínum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 1. júní 2014 14:01 Ingibjörg biðlar til þeirra sem gerðu þetta að stíga fram. „
Svo var það klukkan 4 í nótt sem við vöknuðum upp við flugelda í garðinum okkar og þegar við litum út þá var búið að líma eitt stykki flugeld við trampólín barna okkar. Ég verð að segja að mér varð töluvert brugðið. Þegar fólk er farið að nota leikföng barna minna til að fagna niðurstöðum kosninga og þá greinilega verið að persónugera hluti. Það segir mér enginn að það sé tilviljun að einhver rambi inní garðinn minn, oddvita Samfylkingarinnar, til að sprengja flugelda. Þetta var dropinn sem fyllti mælinn,“ skrifar Ingibjörg Valdimarsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar á Akranesi á Facebook síðu sína.Hún segir þau hjónin hafa komið heim eftir kosningavöku í nótt og orðið þess var að hvítur Audi jepplingur lá á flautunni þegar hann nálgaðist húsið þeirra. „Okkur fannst þetta afar undarlegt að fólk skuli haga sér svona þegar klukkan að ganga 2 að nóttu til en hristum bara hausinn og hugsuðum svo sem ekki meira um það,“ skrifar Ingibjörg. Þau vöknuðu síðan eins og áður segir klukkan fjögur við „gríðarlegar sprengingar“ frá flugeldnuum en trampólín barnanna stendur fyrir utan svefnherbergisglugga þeirra hjóna. Samkvæmt eiginmanni Ingibjargar, Eggerti Herbertssyni vaknaði allt hverfið. „Við hrukkum bara upp af værum svefni og héldum að eitthvað væri að springa en áttuðum okkur fljótlega að þarna væri um flugelda að ræða en okkur datt nú ekki í hug að þeir væru í garðinum okkar,“ segir Ingibjörg í samtali við Vísi. Hún segir að þeim hafi verið verulega brugðið. Þau hjónin tilkynntu atvikið til lögreglu. „Ég [...] vona svo sannarlega að þetta endi hér með því ef fólk er farið að persónugera svona bæði með persónulegu skítkasti og árásum á heimili fólks þá endar það þannig að enginn er tilbúinn að starfa fyrir bæinn okkar. Ég tek það þó fram að ég mun ekki láta þetta brjóta mig niður heldur eflir þetta mig frekar að berjast gegn svona vitleysingum,“ skrifar Ingibjörg. Hún auglýsir að lokum eftir þeim sem gerðu þetta og biður þá að stíga fram. Þá biður hún þá sem urðu varir við mannaferðir í kringum hús hennar um þetta leyti í nótt að láta sig eða lögregluna vita.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að ráðast á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Sjá meira