Vagnstjóri Strætó bs. hreytir fúkyrðum í farþega Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júní 2014 14:31 Hér má sjá þegar vagnstjórinn grípur í manninn. Visir/skjáskot
Orðaskipti vagnstjóra Strætó bs og farþega á leið 14 hafa vakið töluverða athygli eftir að myndband af þeim var sett á Facebook-síðu Strætó í fyrrinótt. Marína Gerða Bjarnadóttir fangaði samskipti mannanna tveggja og segir í orðsendingu með myndbandinu að það sem sést á myndbandinu hafi einungis verið „brot af öllum látunum sem áttu sér stað í strætóinum.“ Eiga þau að hafa hafist þannig að farþeginn sem á í hlut benti vagnstjóranum á að hann fylgdi ekki tímaáætlun leiðarinnar. Hann hafi verið of seinn. Byrjaði bílstjórinn þá að „hreyta í hann meinyrðum og var með óþarfa dónaskap,“ segir Marína í skilaboðunum og bætir við að það sem hún upplifði hafi verið „voðalega ófaglegt“ og að enginn í þjónustustarfi „ætti nokkurn tímann að bregðast svona við.“ Í myndbandinu heyrist rifrildi mannanna greinilega og hefst það á því þegar vagnstjórinn stöðvar bílinn og krefst þess að farþeginn yfirgefi vagninn. Sakar farþeginn bílstjórann um að koma ekki á réttum tíma og fylgja ekki áætluninni sem sjá má skiltum á strætóbiðstöðum borgarinnar. „Það kemur mér ekkert við hvað stendur á skiltinu,“ svarar vagnstjórinn og krefst þess að maðurinn yfirgefi bílinn sem hann hlítir ekki. Kona sem situr fyrir framan fyrrgreindan farþega skerst í leikinn og bendir á að kvörtunum sem þessum eigi að vísa til höfuðstöðva Strætó bs. Maðurinn maldar í móinn og bregst vagnstjórinn þá ókvæða við. „Láttu mig vinna mína vinnu og þegiðu,“ kallar vagnstjórinn því næst á manninn. „Á ég að keyra eftir skiltunum? Hvers konar fífl ertu maður?“ Orðaskipti mannanna halda því næst áfram, vagnstjórinn ásakar farþegann um að vera „ekta fyllibyttu“ sem þarf að „rífast þegar hann er drukkinn“. „Ég rífst líka við þig alveg bláedrú,“ svarar farþeginn. „Þú átt að skammast þín og þegja,“ segir strætóbílstjórinn þá og bætir síðar við: „Þú veist ekki rassgat maður og ættir að skammast þín að láta fólk heyra svona til þín“ Skömmu síðar óskar strætóbílstjórinn eftir því að lögreglan verði kvödd á vettvang til að fjarlægja manninn úr strætisvagninum. Strætó bs. tjáir sig um myndbandið á Facebook-síðu sinni og þakkar Marínu fyrir að vekja athygli fyrirtækisins á hegðun vagnstjórans. Strætó segir þar að málið hafi verið sent áfram á viðeigandi yfirmenn til skoðunar.Í samtali við DV hefur Kolbeinn Óttarsson Proppé, talsmaður Strætó bs. harmað atvikið og sagt það til skoðunar innan fyrirtækisins. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem atferli vagnstjóra Strætó kemst í fréttirnar en Vísir birti frétt fyrir viku síðan af því þegar bílstjóri fyrirtækisins lék sér í spjaldtölvu í miðjum akstri
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira