Sjálfstæðisflokkur og Björt framtíð hefja formlegar viðræður Stefán Árni Pálsson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 4. júní 2014 13:30
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn. Vinna er hafin að mótun sameiginlegrar stefnu um málefni og verklag með áherslu á víðtækt samstarf allra kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn. Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, staðfesti í samtali við fréttastofu í morgun að flokkarnir tveir væru að tala saman en formlegar viðræður væru þó ekki hafnar. Flokkarnir eru samanlagt með sjö bæjarfulltrúa af ellefu. Guðlaug Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar, hefur viðrað þá hugmynd að mynduð verði einhverskonar þjóðstjórn í bæjarfélaginu með samstarfi allra flokka sem náðu inn bæjarfulltrúa. Rósa sagði í samtali við fréttastofu að sú hugmynd hefði ekki verið slegin útaf borðinu. Meirihlutaviðræðum bjartrar framtíðar og og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi verður framhaldið í dag. Theódóra Þorsteinsdóttir, oddviti bjartrar framtíðar sagði í samtali við fréttastofu í morgun, að það væri góður gangur í viðræðum og gerir ráð fyrir því að flokkarnir ræði skiptingu embætta á morgun. Nú þegar liggur fyrir að Björt framtíð gerir ekki kröfu um að fá bæjarstjórastólinn. Theódóra á von á því að viðræðum ljúki um næstu helgi. Oddvitar Samfylkingar, Vinstri grænna, Bjartar framtíðar og Pírata í Reykjavík ætla einnig að funda í dag. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, hefur sagt í fjölmiðlum að markmiðið sé að ljúka viðræðum í lok næstu viku.
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira