Íslendingar ræsa út slökkviliðið í Osló vegna rúnstykkis Bjarki Ármannsson skrifar 4. júní 2014 14:07 Slökkviliðið í Osló brýndi fyrir starfsmönnum Ístaks að varlega þarf að fara með ristavélar. Vísir/AFP
Slökkviliðið í Osló var ræst út fyrr í dag eftir að starfsmaður Ístaks reyndi að rista sér rúnstykki á skrifstofu fyrirtækisins. „Það kom bara pínu reykur og aðallega lykt,“ segir Guðmundur Ármann Böðvarsson, starfsmaður Ístaks í Noregi. „En þeir komu á svona alvöru slökkviliðsbíl.“ Allir höfðu yfirgefið skrifstofubygginguna á Ráðhúsgötu þegar slökkviliðið mætti á staðinn, nema hinir íslensku starfsmenn Ístaks. „Viðvörunarbjöllur fóru í gang og við vissum náttúrulega að það væri enginn eldur,“ segir Guðmundur. Hann segir Íslendingana á skrifstofunni hafa velt því fyrir sér við hvern ætti að tala til að koma í veg fyrir að slökkviliðið gerði sér ferð á staðinn. „En við vissum eiginlega ekkert við hvern við ættum að tala, þannig við vorum bara þarna að aulast og reyna að losa lyktina í burtu þegar slökkviliðið kom.“ Hann játar að þeir hafi verið nokkuð skömmustulegir þegar norsku slökkviliðsmennina bar að garði. „Þeir voru ekkert brjálaðir. Þetta hefur ábyggilega gerst áður.“En hvers vegna var verið að setja rúnstykki í ristavél? „Ég veit það bara ekki,“ viðurkennir Guðmundur. „Það hefur verið orðið gamalt eða eitthvað.“
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira