„Það má ekki bjóða mönnum í lax öðruvísi en að allt fari á hvolf“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. júní 2014 17:56 Bjarni og Sigmundur verða viðstaddir opnun Norðurár á morgun.
Einar Sigfússon, umsjónarmaður Norðurár, er ósáttur við umræðuna um heimsókn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra við opnun Norðurár í Borgarfirði á morgun. Hann er ánægður að ráðherrarnir séu tilbúnir að gefa sér tíma til að auka hróður laxveiði á Íslandi, grein sem hann segir hafa átt undir högg að sækja frá hruni. „Það er mikið happ að fá þessa menn hingað. Ég skil ekki hvað fólki finnst athugavert að þeir komi hingað. Það má ekki bjóða mönnum í lax öðruvísi en að allt fari á hvolf. Við erum að reyna að vekja athygli á að laxveiði sé auðlind,“ segir Einar. Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, segir að ráðherrarnir verði ekki lengi á staðnum. Þeir verði viðstaddir opnun árinnar en fari síðan í önnur verkefni. „Sigmundur Davíð er að fara upp í Borgarfjörð og ætlar að ræða við sveitarstjórnarmenn samhliða heimsókninni. Ætli hann kasti ekki einu sinni til tvisvar út í ána. Við vonum bara að það bíti á.“ Samkvæmt heimildum Vísis á Bjarni Benediktsson að vera staddur í Reykjavík klukkan níu í fyrramálið. Hann mun vera viðstaddur opnunina en heldur þaðan rakleiðis aftur í höfuðborgina. Hvorugur ráðherrann hyggst dvelja lengi á staðnum. Einar þakkar ráðherrunum fyrir að taka vel í boð landeigenda við ána. Hann segir laxveiðisölu vera að taka við sér aftur, eftir samdrátt frá árinu 2008. „Við erum að koma úr erfiðu ári, 2012 var ekkert sérstaklega gott. En nú horfum við fram á betri tíma. Til dæmis er Norðurá uppbókuð í júní og júlí auk þess sem aðsóknin í ágúst er líka góð. Þannig að þetta lítur bara nokkuð vel út og við erum afar ánægð að fá þessa góðu gesti hingað á morgun,“ segir Einar.
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Fleiri fréttir Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Sjá meira