Missa allt að 20 kíló á 12 vikum Hrund Þórsdóttir skrifar 4. júní 2014 21:08
Of feitar konur sem glíma við ófrjósemi munu svelta sig undir stjórn fagfólks í tólf vikur vegna rannsóknar á vegum Art Medica. Markmiðið er að kanna hvort grenningarmeðferð gagnist feitum konum á leið í glasafrjóvgun. Eitt af hverjum sex til sjö pörum glímir við ófrjósemi og fimmti hver Íslendingur við offitu. Offita hefur áhrif á ófrjósemi. „Því er hlutfall of feitra enn hærra í hópi ófrjórra og við höfum áhuga á að kanna hvort einhvern veginn sé hægt að hjálpa þessum hópi,“ segir Snorri Einarsson, kvensjúkdómalæknir á Art Medica, með ófrjósemi sem undirsérgrein. Rannsóknin er hafin í Svíþjóð og Danmörku en fer af stað hér á landi á næstu dögum. Snorri segir meðferðina harða. „ Á tólf vikna tímabili eru konurnar látnar ganga í gegnum það sem er kallað kaloríusnautt mataræði. Þetta er í raun megrunarduft, sem verður til þess að konurnar fara í raun og veru í „stýrt“ svelti. Þær fá öll nauðsynleg næringarefni en fáar kaloríur og grennast því hratt. Á tólf vikna tímabilinu eiga þessar konur að eiga möguleika á að grennast um tíu til tuttugu kíló og þennan hóp berum við saman við konur sem fara ekki í þessa meðferð heldur gangast bara undir glasafrjóvgunarmeðferðina eins og vaninn er í sínum holdum.“ Yfirleitt er mælt með þyngdartapi yfir lengra tímabil og því liggur beint við að spyrja hvort ekki sé hætta á að líkömum kvennanna sé misboðið. „Þegar konur sem eiga við ófrjósemi að stríða og glíma sömuleiðis við offitu koma í meðferð hingað á Art Medica, þýðir lítið að segja við þær: „Grenntu þig og bíddu í tvö ár,““ segir Snorri. Þá hafi rannsóknir sýnt að svelti, sem sé stýrt af fagmönnum og síðan notað til að koma af stað heilbrigðum matarvenjum, skili svipuðum eða betri árangri en hægfarnari leiðir. „Svo ég er ekki hræddur um að til lengri tíma sé þetta verra en eitthvað annað“.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira