Eftirspurn eftir Bjartri framtíð Jón Júlíus Karlsson skrifar 8. júní 2014 21:01 „
Það er greinileg eftirspurn eftir Bjarti framtíð,“ segir stjórnarformaður flokksins. Allt bendir til þess að flokkurinn verði í meirihluta í þremur stærstu bæjarfélögum landsins. Lektor í sagnfræði líkir góðu gengi Bjartar framtíðar við uppgang Kvennalistans fyrir þremur áratugum. Björt framtíð bauð fram í níu sveitarfélögum í sveitarstjórnarkosningunum í ár og náði inn manni í sjö þeirra. Í gær var kynntur meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartar framtíðar í Kópavogi. Búist er við því að sömu flokkar myndi meirihluta á næstu dögum í Hafnarfirði og Björt framtíð er einnig í meirihlutaviðræðum í Reykjavík ásamt Samfylkingu, Pírutum og Vinstri grænum. Það kemur Heiðu Kristínu Helgadóttur, stjórnarformanni Bjartrar framtíðar ekki á óvart að flokkurinn hafi fengið góða kosningu víða um land. „Það hefur verið eftirspurn eftir nýrri tegund af stjórnmálum og ég tel okkur vera mjög nútímalegan flokk sem beitir nútímalegum aðferðum til að ná árangri. Það er að sýna sig að það er eftirspurn eftir því,“ segir Heiða Kristín. Akranes er fjórða sveitarfélagið þar sem Björt framtíð er í meirihlutaviðræðum og því allt eins líklegt að Björt framtíð verði í meirihluta í fjórum af níu stærstu sveitarfélögum landsins. Hvaða þýðingu hefur það fyrir Bjarta framtíð. „Þetta breikkar okkur töluvert og setur okkur á annan stað en við höfum verið á. Við höfum verið óskilgreint afl fyrir mörgum en erum að stimpla okkur inn með afgerandi hætti. Nú reynir á að standa undir væntingum næstu fjögur árin,“ segir Heiða Kristín.Lakari kjörsókn skaðar Bjarta framtíðRagnheiður Kristjánsdóttir, lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands, segir margt líkt með góðu gengi Bjartar framtíðar og uppgangi Kvennalistans sem varð að öflugu stjórnmálaafli fyrir þremur áratugum. „Það er ýmislegt í stuttri sögu Bjartar framtíðar sem minnir á kvennaframboð og Kvennalistann á sínum tíma. Kvennaframboðið varð til fyrst sem framboð til sveitarstjórnarkosninga á Akureyri og í Reykjavík árið 1982. Þau framboð náðu góðum árangri. Upp úr því var Kvennalistinn stofnaður sem bauð síðan fram til Alþingis árið 1983,“ segir Ragnheiður. Kvennalistinn starfaði á Alþingi allt til ársins 1998 að flokkur rann inn í Samfylkinguna. Að mati Ragnheiðar þarf Björt framtíð að móta sér sérstöðu í pólitísku litrófi til að festa sig í sessi í íslenskum stjórnmálum. „Björt framtíð þarf að tryggja að hún hafi áfram sérstöðu. Björt framtíð verður til úr góðum árangri besta flokksins í Reykjavík, sem minnir á kvennaframboðin. Það er spurning hvað gerist núna í framhaldinu og hvort flokkurinn nær að skapa sér áframhaldandi sérstöðu,“ segir Ragnheiður. Hún telur lakari kjörsókn einnig geta haft áhrif á stöðu Bjartar framtíðar. „Það er mikið áhyggjuefni ef að kosningaþátttakan heldur áfram að dvína vegna þess að Björt framtíð vill sækja fylgi til fólks sem margt bendir til að sé ekki að mæta á kjörstað.“
Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira