Bíll frá Ísafirði tekur við pökkum á Suðureyri Kjartan Atli Kjartansson skrifar 20. maí 2014 09:47 Suðureyri.
Íbúar á Suðureyri þurfa ekki að keyra á Ísafjörð til þess að póstleggja pakka. Póstbíll kemur frá Ísafirði daglega og geta íbúar á Suðureyri nýtt sér. Þetta kemur fram í ábendingu Hrannar Óskarsdóttur, sem er almannatengill Póstsins. Fyrr í mánuðinum birti Vísir frétt um breytingar á póstþjónustunni á Suðureyri. Áður gátu íbúar þar póstlagt pakka í banka þorpsins, en þann fyrsta maí var sú þjónusta lögð niður. Í staðinn kemur póstbíll einu sinni á dag frá Ísafirði og tekur við pakkasendingum. Þetta er hér með leiðrétt. Hér er ábending Hrannar í heild sinni:Þann 7. maí síðastliðinn birtist grein á Visir sem nefnist „Bæjarstjóri styður við bakið á nýjum bréfbera“. Í greininni er meðal annars fjallað um þær breytingar sem hafa orðið á póstþjónustu á Suðureyri. Þar kemur fram að íbúar á Suðureyri þurfi að keyra til Ísafjarðar til að póstleggja og ná í pakkasendingar. Pósturinn vill leiðrétta þennan misskilning og koma því á framfæri að póstbíllinn sem þjónar Suðureyri bæði tekur við og kemur pakkasendingum til skila.Póstbílar tóku við dreifingu á pósti til einstaklinga og fyrirtækja á Suðureyri og Þingeyri þann 1. maí síðastliðinn. Bílarnir eru staddir á Þingeyri frá kl 11:00 til 13:00 og á Suðureyri frá kl 13:30 til 15:30 alla virka daga. Hægt er að hafa samband við þjónustuver í síma 580 1200 til að koma sendingum til póstbílanna, eða óska eftir að fá sendingu afhenta. Einnig er hægt að hringja beint í bílana, símanúmer er 825 1422 fyrir bílinn á Suðureyri en 825 1477 fyrir Þingeyri. Greiðsluposi er í bílunum, en einnig er hægt að vera í reikningsviðskiptum hjá Póstinum. Sú þjónusta hentar vel fyrirtækjum, félagasamtökum og öðrum aðilum sem senda póst frá sér reglulega.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Sjá meira