Bílastæðasjóður hirðir bíl af Gísla Tryggvasyni Jakob Bjarnar skrifar 20. maí 2014 11:26 Gísli Tryggvason sættir sig ekki við það að Bílastæðasjóður geti farið sínu fram án þess að svo mikið sem til andmælaréttar komi.
Fyrir um hálfum mánuði hirti Bílastæðasjóður bíl Gísla Tryggvasonar lögmanns og ætlar að bjóða hann upp. Þetta er vegna 5000 króna stöðumælasektar sem Gísli vill ekki greiða vegna þess að hann telur sektina ekki réttmæta. Enginn hefur tekið málið fyrir og/eða úrskurðað um lögmæti sektarinnar (en lögmaðurinn sem var sektaður neitar að greiða af prinsippástæðum, og hefur nú misst bílinn sinn - þ.e.a.s. bílastæðasjóður vörslusviptir í raun án dóms og laga eftir að hafa úrskurðað í eigin sök án nokkurrar vísunar til laga.Bíllaus í tvær vikur„Þeir vísa reyndar til umferðarlaga en þar er tekið fram að það sé ekki hægt að kæra þetta til æðra stjórnvalds. Svo kem ég ítrekað með andmæli að þessum bíl hafi verið lagt í stæði merkt „skólabíll“ að kvöldi dags eftir lok skólatíma. Fyrir framan Laugardalslaugina þar sem alltaf er lagt á kvöldin og um helgar,“ segir Gísli í samtali við Vísi. Lögmaðurinn hefur reynt að koma þessum andmælum að en Bílastæðasjóður og gjaldheimtan taka ekki mark á því. „Mér hefur enginn kostur gefist á að bera þetta undir óháðan úrskurðaraðila. Og nú er ég búinn að vera bíllaus í tvær vikur og hef reynt að koma þessu til úrskurðar hjá sýslumanni og dómara. En án árangurs ennþá. Staðan er í raun og veru sú að stöðumælavörður getur að óbreyttu komið bílnum í nauðungarsölu ef sýslumaður og dómari geta ekki gripið inní. Það er óásættanlegt og ekkert réttaröryggi í því, að fá enga endurskoðunarmöguleika.“ Málið gæti í raun tengst fleiri stjórnvaldsákvörðunum sem er ekki hægt að áfrýja og því að borgin virðist í raun tekið sér „refsivald“ án þess að fórnarlambið fái rönd við reist.Um hundrað þúsund komnar í sektir og kostnað Bíllinn sem um ræðir er kominn til ára sinna, „bara fólksbíll,“ segir Gísli: Volkswagen Bora svartur, árgerð 1999. „Það var fullt af persónulegum munum í bílnum þegar hann var tekinn. Þeir tóku hann í skjóli nætur. Mér gafst ekkert færi á að afhenda bílinn án kostnaður, en kostnaðurinn lendir á mér nema mér takist að sýna fram á að þetta ákvæði umferðarlaganna eigi ekki við að fara beint í uppboð. Því það eigi að vera andmæli og svo fyrirtaka. Þeir fara beint í uppboð án andmæla þannig að ég held að þeir séu að brjóta umferðarlögin með þessu.“ Bílastæðasjóður er harður í horn að taka, að sögn Gísla, og ekki eru þeir þar viljugir til að finna leið til að láta á málið reyna fyrir óháðum úrskurðaraðila. Um hundrað þúsund krónur komnar í sektir og kostnað. „En ég mun krefjast bóta fyrir afnotamissi ef ég vinn þetta mál. Ég vona að sýslumaður taki þetta fyrir og þá get ég krafist þess að fá bílinn aftur.“
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent Fleiri fréttir Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Sjá meira