Gengur í nótt á Selfoss og syndir í minningu barnabarns síns Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 20. maí 2014 12:35 Guðný Sigurðardóttir, sem kallar gönguna sína „Kærleiksverk ömmu Guðnýjar og Vilhelms Þórs.“ Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson „
Ég verð þarna algjörlega á eigin vegum, ég verð sjálf að gæta mín á umferðinni og einnig að huga að líkamlegum þörfum mínum. Þetta er ekki ganga á vegum neins „gönguhóps eða félags“ þetta er bara gangan mín, sem er hugsuð sem minningarferð um dótturson minn sem drukknaði í Sundlauginni á Selfossi fyrir þremur árum “ segir Guðný Sigurðardóttir á Selfossi sem ætlar að byrja að ganga á miðnætti í kvöld frá Landspítalanum í Reykjavík að Sundhöll Selfoss og synda þar 286 ferðir. Þann 21. maí fyrir þremur árum varð slys í Sundhöll Selfoss þar sem dóttursonur Guðnýjar, Vilhelm Þór, drukknaði. Hann var fluttur á Landsspítalann í Reykjavík þar sem læknar og hjúkrunarfræðingar reyndu sitt allra besta til þess að bjarga honum. En allt kom fyrir ekki og var hann úrskurðaður látinn daginn eftir. Ferðin sem amma Guðný er að leggja uppí er því mjög táknræn fyrir hana og alla fjölskylduna. Að ganga öfuga leið við hinstu ferð Vilhelms Þórs með sjúkrabílnum og synda svo 286 ferðir í innilauginni þar sem slysið varð eða jafn margar ferðir og vikurnar sem hann lifði. Með göngu sinni og sundi vill Guðný vekja athygli á mikilvægi nýstofnaðra samtaka, Birta - Landssamtök foreldra/forráðamanna sem misst hafa börn/ungmenni með skyndilegum hætti. Áætlaður göngutími er um 14 klst. Til stendur að hópur fólks muni bætast við gönguna í Hveragerði og ganga síðasta áfangann. Stofnaður hefur verið reikningur þar sem fólk og fyrirtæki geta lagt inn frjáls framlög samtökunum til stuðnings. Einnig er hægt að hringja í númerið 901-5050 og styðja við samtökin með þúsund króna framlagi. Öll getum við séð af 1000 krónum til að styrkja og styðja Birtu-Landssamtök. Reikn. 1169-05-1100 og Kt. 231261-2579.
Tengdar fréttir Gengur og syndir í minningu Vilhelms Guðný Sigurðardóttir ætlar að ganga frá Reykjavík til Selfoss næsta sumar til minningar um dótturson sinn, Vilhelm Þór, sem lést árið 2011. 10. desember 2013 07:00 Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Sjá meira
Gengur og syndir í minningu Vilhelms Guðný Sigurðardóttir ætlar að ganga frá Reykjavík til Selfoss næsta sumar til minningar um dótturson sinn, Vilhelm Þór, sem lést árið 2011. 10. desember 2013 07:00