Félagsmálaráðherra segir nei við einkavæðingu virkjana Heimir Már Pétursson skrifar 21. maí 2014 20:00
Félagsmálaráðherra segir ekkert í stjórnarsáttmálanum um sölu á hlut í Landsvirkjun og leggst alfarið á móti hugmyndum fjármálaráðherra þar að lútandi. Ekki komi til greina að einkavæða orkufyrirtæki landsins. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, sem fer með hlutabréf ríkisins í Landsvikjun, ávarpaði aðalfund hennar í gær og sagðist vilja kanna þann möguleika að ná samstöðu um að selja lífeyrissjóðunum allt að 20 prósent í Landsvirkjun. Fjármálaráðherra hefur ekki kynnt þessar hugmyndir sínar við ríkisstjórnarborðið. En ljóst er að andstaðan við málið er mikil á meðal framsóknarmanna og því yrði erfitt að ná samstöðu um málið. Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra segir þetta útspil Bjarna hafa komið henni á óvart. „Já, þetta er ekki í stjórnarsáttmálanum og það liggur alveg fyrir hver afstaða framsóknarmanna er varðandi sölu og einkavæðingu á Landsvirkjun,“ segir félagsmálaráðherra. „Hún er sú að við teljum að Landsvirkjun eigi að vera í eigu ríkisins,“ bætir Eygló við. Fjármálaráðherra sé greinilega að tjá sínar eigin skoðanir og megi það eins og aðrir í ríkisstjórninni. „Það liggur fyrir að ég hef mjög lengi verið á móti einkavæðingu og sölu á hvort sem við erum að tala um hluta eða öllu leyti varðandi orkufyrirtæki í ríkiseigu. Það hefur ekki breyst. Ég hef tjáð mig um það árið 2007, 2010 og nú árið 2014 og það liggur fyrir ályktun á flokksþingi framsóknarmanna varðandi þetta mál,“ segir Eygló. Eygló segir stöðu Landsvirkjunar og þörf lífeyrissjóðanna fyrir fjárfestingarkosti engu breyta í þessum efnum. „Ég held við eigum að huga að því hvert er hlutverk Landsvirkjunar og hvert er hlutverk þeirra orkufyrirtækja sem eru í ríkiseigu. Það er í mínum huga að tryggja ákveðna grunnþjónustu. Þjónustu sem er nauðsynleg fyrir öll heimili og öll fyrirtæki í landinu og gera það á sem hagkvæmastan máta en ekki það endilega að leysa úr einhverjum tímabundnum vandkvæðum hjá lífeyrissjóðunum,“ segir Eygló Harðardóttir.
Mest lesið Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsir eftir Hauki Haukssyni Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Fleiri fréttir Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsir eftir Hauki Haukssyni Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sjá meira